Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar fyrir marsmánuð
11.04.2024
|
Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir síðustu 12 mánuðina, nú við lok mars þegar sólin hefur hækkað verulega á lofti, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað um hádegisbil þann 11. apríl.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 450 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 119 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.407,0 árskúa á búunum 450 var 6.470 kg. eða 6.522 kg. OLM
Lesa meira