Bændur hvattir til að taka þátt í að marka framtíðarsýn RML

Í byrjun steptember opnaðist könnun inni á Bændatorginu fyrir bændur að taka þátt í. Þessi könnun er liður í stefnumótunarvinnu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins sem hófst með umræðum á Búnaðarþingi í vor. RML er eins og bændur vita í eigu þeirra sjálfra sem dótturfélag Bændasamtaka Íslands. Núna eru liðin rúm þrjú ár síðan RML varð til með sameiningu ráðgjafarþjónustu búnaðarsambandanna um allt land og Bændasamtaka Íslands. Við stofnun voru sett fram markmið fyrirtækisins og ákveðið skipurit sem unnið hefur verið eftir allar götur síðan. Forsöguna og markmiðin er hægt að kynna sér hérna á heimasíðunni undir starfssemi. Síðasta vetur ákvað stjórn RML að tímabært væri að fara yfir þetta skipulag og vinna markvissa stefnumótun fyrirtækisins til að tryggja að starfsemin sé í samræmi við óskir og kröfur bænda til fyrirtækisins og ráðgjafar í landbúnaði.

Fyrsta skrefið í stefnumótuninni var að leggja fyrir búnaðarþing spurningar og umræðupunkta sem unnið var með í öllum nefndum þingsins. Þar á eftir var unnið með sambærilegar spurningar og umræðupunkta inni á starfsdögum RML þar sem allir starfsmenn tóku þátt. Í bæði skiptin var unnið með kosti og galla starfsseminnar eins og hún er núna og reynt að ná fram framtíðarsýn bæði bænda og starfsfólks RML. Næsta skref í þessari vinnu er í framkvæmd núna en það er spurningakönnun sem lögð er fyrir bændur, allir bændur sem eru með aðgang að Bændatorginu hafa möguleika á að taka þátt og þar með að taka þátt í stefnumótun RML.

Það tekur ekki langan tíma að svara og hvetjum við því alla til að gefa sér smá stund, fara inn á bændatorgið og svara könnunni. Niðurstöðurnar er ekki hægt að rekja til einstakra svarenda og munu niðurstöðurnar svo nýtast áfram inn í stefnumótunar vinnu stjórnar RML í haust og vetur. Látið rödd ykkar heyrast, takið þátt.

boo/okg