DNA-sýnataka á höfuðborgarsvæðinu

Pétur Halldórsson, ráðunautur hjá RML, verður við DNA-stroksýnatökur í hesthúsahverfum á höfuðborgarsvæðinu föstudaginn 15. maí. Áhugasamir vinsamlegast setji sig í samband við Pétur í síma 862-9322 og/eða petur@rml.is.

Minnum á að frá vori 2015 verða allar hryssur sem koma til kynbótadóms að vera skráðar með DNA sýnatöku í WorldFeng.  Ekki þarf að liggja fyrir sönnun á ætterni þeirra.  Sama fyrirkomulag og áður er varðandi stóðhesta.  Sjá nánar um DNA sýni og arfgerðargreininar hér á vefnum: http://www.rml.is/is/bufjarraekt/hrossaraekt/dna-synatokur. 

ph/okg