Framlengdur skráningarfrestur á kynbótasýningu í Víðidal

Skráningarfrestur á kynbótasýningar í Víðidal, Gaddstaðaflötum og Miðfossum rann út síðastliðinn föstudag. Miðað við þær skráningar sem komnar voru inn þegar skráningafresti lauk er nú búið að manna sýningar og festa sýningardaga. Þar sem svigrúm er til að bæta  hrossum við kynbótasýningu í Víðidal 8.-12. júní hefur verið opnað á skráningu til að fylla í þau pláss á þessari tilteknu sýningu. Skráning verður opin fram að miðnætti föstudags 29. maí eða þar til sýning fyllist.

lr/okg