Innheimta í hrossarækt - reikningar í tölvupósti

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins sinnir skráningum í hrossarækt s.s. grunnskráningu og eigendaskiptum. Þeir sem eru með aðgang að Worldfeng geta skráð þetta sjálfir í gegnum heimaréttina. Fyrir þessi verkefni innheimtir RML kr. 1.500 pr hross. Framvegis munu reikningar fyrir þessa vinnu einungis berast viðskiptavinum í tölvupósti.
Reikningar munu eftir sem áður birtast í heimabanka viðkomandi.
Óski menn eftir útprentuðum reikningi í bréfpósti þá er hægt að óska eftir því með því að senda póst á netfangið rml@rml.is

hh