Kynbótasýning á Hólum dagana 6-10. júní

Vegna mikillar þátttöku á kynbótasýningunni á Hólum í Hjaltadal hefur verið ákveðið að hafa tvö dómaragengi að störfum. Sýningin hefst því ekki á sunnudegi, eins og áður var auglýst, heldur hefjast dómar stundvíslega kl. 8:00 mánudaginn 6. júní. Dæmt verður mánudag, þriðjudag og miðvikudag og yfirlitssýning verður fimmtudag og föstudag. Röðun hrossa verður birt um leið og hún er frágengin.

hes/okg