Kynningarfundir um fjarvis.is

Næstu daga verður framhald á kynningarfundum um skýrsluhaldskerfið í sauðfjárrækt, fjarvis.is.
Á fundunum verða kynntar þær breytingar og endurbætur sem urðu á kerfinu við uppfærslu í lok mars. Fundirnir verða sem hér segir:

Mánudaginn 13. apríl - Blönduósi (sal búnaðarsambandsins) kl: 14:00.
Mánudaginn 13. apríl - Gauksmýri, V-Húnavatnssýslu kl: 20:00.
Miðvikudaginn 15. apríl - Ýdölum, Aðaldal kl: 13:00.
Miðvikudaginn 15. apríl - Svalbarði, Þistilfirði kl: 20:00.
Fimmtudaginn 16. apríl - Búgarði, Akureyri kl: 13:00.
Fimmtudaginn 16. apríl - Tjarnarbæ, Skagafirði kl: 20:00.
Föstudaginn 17. apríl - Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum kl: 14:00.
Föstudaginn 17. apríl - Mánagarði, Nesjum, Hornafirði kl: 20:00.
Mánudaginn 20. apríl - Hótel Rjúkanda, Snæfellsnesi kl: 13:00.
Mánudaginn 20. apríl - Hvanneyri (húsnæði LbhÍ) kl: 20:00.
Þriðjudaginn 21. apríl - Leifsbúð, Búðardal kl: 14:00.
Þriðjudaginn 28. apríl - Holti, Önundarfirði kl: 14:00.

/eib