Niðurstöður afurðaskýrslnanna í nautgriparæktinni í ágúst 2016

Kjarri frá Lyngbrekku
Kjarri frá Lyngbrekku

Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni nú í ágúst hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til nokkru eftir hádegið þ. 13. september, höfðu skýrslur borist frá 90% þeirra 574 búa sem skráð voru til þátttöku. Reiknuð meðalnyt 23.030,2 árskúa á þessum 90% búanna, var 6.163 kg á síðustu 12 mánuðum. Sambærileg tala frá því fyrir mánuði síðan var 6.166 kg. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 44,6 á tímabilinu en var 44,9 fyrir mánuði. Hafa þarf enn í huga nú sem fyrr að hér er um að ræða 90% skil skýrslna og skoða þarf niðurstöðurnar í samræmi við það.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum var hið sama og við seinasta uppgjör, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr mjólkaði þar 8.662 kg. á tímabilinu. Búið í öðru sæti listans var einnig hið sama og síðast, bú Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, en þar var nytin 8.355 kg. Þriðja í röðinni nú við lok ágúst var bú Sigurðar og Báru í Lyngbrekku á Fellsströnd þar sem meðalafurðir árskúnna reyndust 8.332 kg. Bú Sigurðar og Báru var í fjórða sæti á listanum við seinasta uppgjör. Fjórða nú en fimmta seinast, var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit á Snæfellsnesi þar sem meðalnytin reyndist 8.200 kg. eftir árskú. Búið í fimmta sæti að þessu sinni, en þriðja fyrir mánuði var bú Pálma Ragnarssonar í Garðakoti í Hjaltadal í Skagafirði þar sem meðalárskýrin skilaði 8.145 kg. á síðustu 12 mánuðum.

Nythæsta kýrin nú við lok ágústmánaðar og einnig fyrir mánuði var Urður 1326 (f. Steini 259, undan Mána 03025) í Birkihlíð í Skagafirði en hún skilaði 13.550 kg. á síðustu 12 mánuðum. Önnur í röðinni nú, einnig sú sama og seinast, var kýrin Gola 970 (f. Hjarði 06029) á Gili í Borgarsveit í Skagafirði en hún mjólkaði 13.444 kg. á síðustu 12 mánuðum. Í þriðja sæti að þessu sinni var Agla nr. 361 (f. Þrasi 98052) í Viðvík í Viðvíkursveit í Skagafirði, en hún mjólkaði 13.229 kg. á seinustu 12 mánuðum. Í fjórða sæti að þessu sinni var Bára 506 (f. Þrasi 98052) á Brúsastöðum í Vatnsdal en nyt hennar reyndist 12.773 kg. á tímabilinu. Fimmta kýrin í röðinni nú en hin fjórða seinast var Storma 1439 (f. Kasper 1386 undan Takti 06046) í Birkihlíð sem mjólkaði 12.712 kg. síðustu 12 mánuði.

Alls náði 71 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir ágúst hafði verið skilað frá nú nokkru eftir hádegi þ. 13. september, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. 13 af þessum 67 kúm, náðu að skila meiri mjólk en 12.000 kg. og þrjár af þeim meiru en 13.000 kg.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk