Niðurstöður skýrslnanna í nautgriparæktinni við lok júlí 2016

Svelgur frá Urðum í Svarfaðardal, á Nautastöðinni
Svelgur frá Urðum í Svarfaðardal, á Nautastöðinni

Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni í nýliðnum júlí hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til nokkru fyrir hádegið þ. 11. ágúst, höfðu skýrslur borist frá 86% þeirra 574 búa sem skráð voru til þátttöku. Reiknuð meðalnyt 22.159,2 árskúa á þessum 86% búanna, var 6.166 kg á síðustu 12 mánuðum. Sambærileg tala frá því fyrir mánuði síðan var 6.128 kg. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 44,9 á tímabilinu en var 44,7 í mánuðinum á undan. Hafa þarf í huga nú sem fyrr að hér er um að ræða 86% skil skýrslna og skoða ætti niðurstöðurnar í samræmi við það.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum var hið sama og við seinasta uppgjör, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr mjólkaði þar 8.514 kg. á tímabilinu. Búið í öðru sæti listans var einnig hið sama og síðast, Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, en þar var nytin 8.395 kg. Þriðja búið í röðinni nú en hið fjórða fyrir mánuði var bú Pálma Ragnarssonar í Garðakoti í Hjaltadal þar sem meðalnytin reiknaðist nú 8.259 kg. Í fjórða sæti við uppgjör júlímánaðar var bú Sigurðar og Báru í Lyngbrekku á Fellsströnd, en afurðir meðalárskýrinnar þar voru 8.241 kg. síðustu 12 mánuðina. Bú Sigurðar og Báru var nr. 3 á listanum við lok júní. Fimmta búið að þessu sinni var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit en þar voru meðalafurðirnar nú 8.127 kg. eftir árskú

Nythæsta kýrin nú við lok júlímánaðar var Urður 1326 (f. Steini 259, undan Mána 03025) í Birkihlíð í Skagafirði en hún skilaði 13.553 kg. á síðustu 12 mánuðum. Urður var næstefst á þessum lista eftir lok júní. Önnur í röðinni nú var kýrin Gola 970 (f. Hjarði 06029) á Gili í Borgarsveit í Skagafirði en hún mjólkaði 13.189 kg. á síðustu 12 mánuðum. Þriðja efsta kýrin að þessu sinni var Sædís 520 í Garðakoti í Hjaltadal en hún skilaði 12.680 kg. á tímabilinu. Fjórða efsta kýrin, sama og fyrir mánuði var Storma 1439 (f. Kasper 1386 undan Takti 06046) í Birkihlíð eins og efsta kýrin, Urður 1326. Storma mjólkaði 12.581 kg. síðustu 12 mánuðina. Fimmta var kýr 414 (f. Ófeigur 02016) á Núpi á Berufjarðarströnd en nyt hennar síðustu 12 mánuðina var 12.537 kg. á seinustu 12 mánuðum.

Alls náðu 67 kýr á þeim búum, sem afurðaskýrslum fyrir júlí hafði verið skilað frá nú nokkru fyrir hádegi þ. 11. ágúst, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. 12 af þessum 67 kúm, náðu að skila meiri mjólk en 12.000 kg. og tvær af þeim meiru en 13.000 kg.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk