Opnað fyrir skráningar á miðsumarsýningar

Í dag 15. júní var opnað á skráningar á miðsumarssýningar. Sýningarnar verða tvær að þessu sinni, á Selfossi og á Hólum í Hjaltadal. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að fara inn á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins www.rml.is en þar má finna í valmyndinni á forsíðunni „skrá á kynbótasýningu“. Á sömu heimasíðu undir búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar má finna leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu. Hér í töflunni fyrir neðan má sjá síðasta skráningar- og greiðsludag en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Lena Reiher og Oddný Kristín Guðmundsdóttir munu leiðbeina þeim sem þess þurfa í síma 516-5000, einnig verður hægt að senda þeim tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar.  Hér fyrir neðan má sjá hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur á sýningarnar.

Dags.

Staður

Loka skráningar- og greiðsludagur

25.7-29.7

Brávellir, Selfossi

föstudagur 15. júlí

25.7-29.7

Hólar í Hjaltadal, Skagafirði

föstudagur 15. júlí

 

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðu RML, www.rml.is, þegar þær eru frágengnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Verð fyrir fullnaðardóm er 23.000 kr en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 17.600 kr.Mikilvægt er að ef greitt er með millifærslu í gegnum banka, að greiðsla berist samdægurs og pöntunarnúmer fylgi millifærslunni. Talsvert hefur borið á því að pöntunarnúmer fylgi ekki og þá getur reynst erfitt að finna út fyrir hvaða hross var verið að greiða. Við viljum benda á að greiðsla með korti er mjög þægilegur kostur því þá birtist skráð hross strax inn á viðkomandi sýningu, þannig ekki er nein hætta á að greiðsla misfarist.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lr@rml.is. Endurgreitt er  13.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 10.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.  Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. september. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið.  Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og  rml@rml.is.

 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf.

hes/gj