Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir starfsmanni í rekstrarráðgjöf

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir starfsmanni í rekstrarráðgjöf.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Starf í ráðgjafateymi RML sem sinnir rekstrarráðgjöf í landbúnaði.
  • Vinna við rekstrar- og fjármögnunaráætlanir fyrir bændur.
  • Vinna við rekstrargreiningar í búrekstri.
  • Þróun og sala á ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við aðra starfsmenn RML.
  • Önnur verkefni s.s. vinna við gerð og þróun líkana í excel, þátttaka í nýsköpunarverkefnum og samskipti við fjármálastofnanir.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Góð kunnátta á excel er nauðsyn.
  • Þekking á dk-Búbót bókhaldskerfinu eða sambærilegu kerfi er kostur.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð skilyrði.
  • Geta til að vinna undir álagi.
  • Góðir samskiptahæfileikar.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið á 13 starfsstöðvum. Við bendum áhugasömum á að hér á heimasíðunni er hægt að kynna sér starfsemina betur sem og að sækja um starfið. 

Umsóknarfrestur er til og með 21. júlí. Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri klk@rml.is og Berglind Ósk Óðinsdóttir boo@rml.is starfsmannastjóri. 

Sjá nánar:

Sækja um starf hjá RML

klk/okg