Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir starf garðyrkjuráðunautar

Garðyrkjuráðunautur veitir alhliða og markvissa ráðgjöf í garðyrkju og ylrækt með það að markmiði að stuðla að aukinni framleiðni, hagkvæmni og eflingu þessarar mikilvægu greinar landbúnaðarins. Við leitum eftir einstaklingi sem hefur mikinn áhuga á garðyrkju og er tilbúinn til þess að setja sig vel inn í starfsumhverfi greinarinnar. Ráðningin er til eins árs en með möguleika á framlengingu. 

Ábyrgðarsvið:

  • Markviss fagráðgjöf og þróunarstarf fyrir framleiðendur í ylrækt og garðyrkju.
  • Uppbygging ráðgjafar á sviði garðyrkju. 
  • Þverfaglegt samstarf við ráðunauta á öðrum fagsviðum RML.
  • Hugmyndavinna, nýjungar og mat á viðskiptahugmyndum.
  • Vinna við þróun og sölu á ráðgjöf á landsvísu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í garðyrkju/búvísindum/líffræði.
  • Reynsla og þekking á ráðgjafarstörfum er æskileg.
  • Metnaður, frumkvæði og leiðtogahæfileikar.
  • Samviskusemi, skipulögð vinnubrögð og góð hæfni í mannlegum samskiptum.

Áhugasömum er bent á að sækja um hér í gegnum heimasíðuna, ekki seinna en 1. febrúar næstkomandi. 

Nánari upplýsingar gefur Berglind Ósk Óðinsdóttir starfsmannastjóri RML í gegnum netfangið boo@rml.is.

Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og starfsferil umsækjanda ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. 

Sjá nánar

Umsókn um starf 

klk/okg