Rafrænir reikningar - lambadómar og fjárbækur

Reikningar vegna lambadóma verða sendir út rafrænt. Það mun stofnast krafa í heimabanka viðkomandi en reikningur er þar aðgengilegur undir rafrænum skjölum.
Þá munum við einnig senda afrit í tölvupósti.
Með því að senda reikningana rafrænt spörum við pappír og sendingarkostnað auk þess sem það er mun umhverfisvænna.

Rafrænir reikninga birtast viðskiptavini því með þrennum hætti:
• Sem rafrænt skjal í heimabanka.
• Krafa birtist í heimabanka.
• Tölvupóstur með viðhengi berst viðkomandi sem er með tölvupóst.
• Hafi viðskiptavinur ekki skráð netfang hjá okkur þá munum við senda reikninginn í bréfpóst fyrst um sinn.
Athugið að reikningar vegna fjárbóka nú í haust voru eingöngu sendir rafrænt nema bændur bæðu um annað. Þetta var rækilega kynnt þegar fjárbækur voru sendar út fyrir ári síðan.
Ef bændur óska eftir að fá senda reikninga heim í bréfpósti, þá er sjálfsagt að verða við því.
Vinsamlega látið þá vita á skiptiborð RML í síma 5165000.

hh/vs