Röðun hrossa á kynbótasýningu á Selfossi dagana 23. til 27. maí

Kynbótasýning verður á Selfossi dagana 23.-27. maí 2016. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 mánudaginn 23. maí. Yfirlitssýning verður föstudaginn 27. maí. Alls eru 132 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" hér hægra megin á forsíðunni eða hlekkinn hér að neðan.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar:

Röð hrossa á kynbótasýningum