Síðsumarssýning á Miðfossum 11.-15. ágúst. Síðasti skráningardagur föstudagur 1. ágúst

Kynbótasýning fer fram á Miðfossum dagana 11.-15. ágúst verði þátttaka næg. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“. 

Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér á heimasíðu RML í gegnum flýtihnapp á forsíðunni.

Síðasti skráningar- og greiðsludagur er föstudagurinn 1.ágúst. Verð fyrir fullnaðardóm er 20.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 15.500,- kr.
Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en sýningarvikan hefst, í síma 516-5000.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.

Endurgreiddar eru kr. 13.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 10.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm.
Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. september.

Allar nánari upplýsingar í síma RML, 516-5000 eða hér á heimasíðunni undir "Búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar" þar sem t.d. má finna leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu.

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir hvern stóðhest fimm vetra og eldri þurfa niðurstöður úr blóðsýni og röntgenmynd af hæklum að liggja fyrir í WorldFeng. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu.

hh/okg