Skráningar á miðsumarsýningar 2016

Þann 15. júní var opnað á skráningar á miðsumarssýningar. Sýningarnar verða tvær að þessu sinni, á Selfossi og á Hólum í Hjaltadal.

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér á heimasíðu RML í gegnum flýtihnapp á forsíðunni. Hér á síðunni er einnig að finna leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu.

Í töflunni hér að neðan má sjá síðasta skráningar- og greiðsludag en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu.

Starfsmenn RML munu leiðbeina þeim sem þess þurfa í síma 516-5000, einnig verður hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar. Hér fyrir neðan má sjá sýningar vorsins og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur.

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðunni þegar þær eru klárar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Sýningargjöld og fleira

Verð fyrir fullnaðardóm er 23.000 kr en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 17.600 kr. Mikilvægt er að ef greitt er með millifærslu í gegnum banka, að greiðsla berist samdægurs og pöntunarnúmer fylgi millifærslunni. Talsvert hefur borið á því að pöntunarnúmer fylgi ekki og þá getur reynst erfitt að finna út fyrir hvaða hross var verið að greiða. Við viljum benda á að greiðsla með korti er mjög þægilegur kostur því þá birtist skráð hross strax inn á viðkomandi sýningu, þannig er ekki nein hætta á að greiðsla misfarist.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lr@rml.is. Endurgreitt er 13.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 10.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. september. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:

  • Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
  • Allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra.
  • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
  • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt
  • Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann, þar sem örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna hér á heimasíðunni, eða með því að hringja í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is, halla@rml.is og rml@rml.is.

lr/okg