Skráningarfrestur framlengdur á seinni vikuna á Mið-Fossum

Skráningarfrestur á kynbótasýninguna á Mið-Fossum dagana 6. til 10. júní hefur verið framlengdur fram á miðnætti á föstudag 27. maí. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“.

Allar frekari upplýsingar má fá í síma Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða á heimasíðunni www.rml.is, þar eru t.d. leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin lr@rml.is og  halla@rml.is.                   

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir hvern stóðhest fimm vetra og eldri þurfa niðurstöður úr blóðsýni og röntgenmynd af hæklum að liggja fyrir í WorldFeng. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu. Ekki er hægt að skrá hryssur og geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.                                                                                         

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf

hes/gj