Skráningarfrestur lengdur til 10.08. á síðsumarssýningar

Skráningarfrestur vegna kynbótasýninga síðsumars hefur verið lengdur til mánudagsins 10. ágúst n.k  í stað föstudags.  Skráning verður því opin fram að miðnætti þann 10.08.  Sýningarnar sem um ræðir verða á Miðfossum, Sauðárkróki og Selfossi dagana 17.-21. ágúst, náist lágmarksfjöldi á sýningarnar.  Nánar auglýst þegar nær dregur.

ÞK/AGG