Verð á mjólk til bænda hækkar um 1,24 kr/l. þann 1. jan. 2017

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið samhljóða ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum hækki um 1,7% hinn 1. janúar nk. Afurðastöðvaverð til bænda hækkar um 1,24 kr. á lítra mjólkur, úr 86,16 kr. í 87,40 kr. Þá hækkar vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur um 1,51 kr. á lítra mjólkur. 

Samanlögð hækkun heildsöluverðs er því 2,75 kr. á hvern lítra mjólkur. Verðhækkunin er til komin vegna uppsafnaðra hækkana á vinnslu- og rekstrarkostnaði.

/gj