    <language>is</language>
Sauðfjárrækt | Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Staða og gæðamat arfgerðagreininga
Góður gangur er í arfgerðagreiningum og búið að greina heldur fleiri sýni en á sama tíma í fyrra.
Í lok maí kom í ljós að einhver frávik höfðu orðið í greiningarferlinu í einni sendingu af niðurstöðum og í kjölfarið var sú sending af niðurstöðum tekin út og ákveðið að endurgreina þau sýni. 
Pantanir á DNA-sýnatökubúnaði
Eins og auglýst var fyrr í vor verður ekki opið fyrir pantanir á sýnatökubúnaði fyrir DNA-sýni í sauðfjárrækt frá 15. júní til 15. ágúst. Þeir bændur sem vilja taka fleiri sýni hjá sér fyrir 15. ágúst þurfa því að hafa hraðar hendur og ganga frá pöntunum nú yfir helgina, en lokað verður fyrir pantanir frá og með mánudeginum 16. júní. Opnað verður aftur fyrir pantanir föstudaginn 15. ágúst.]]></description>
DNA innlestur 26.05. tekinn út
Svo virðist sem að DNA niðurstöður sem lesnar voru inn þann 26.05 hafi ekki verið alveg réttar og hefur innlesturinn verið tekinn út úr Fjárvís.]]></description>
Skil á vorgögnum
Nú er sauðburður vel á veg kominn víða um land og sauðfjárbændur margir hverjir farnir að huga að skráningu vorgagna. Í fyrra var opnað á nýjar skráningar í Fjárvís, þ.e. bæði burðar- og lambaskráningu. Þessum nýju skráningum var ætlað að leysa af hólmi vorbókarformið í Fjárvís, sem er heldur komið til ára sinna. Þar sem vorbókin er orðin mjög gömul og villusækin ef svo má segja mælum við eindregið með því að notendur nýti sér nýju skráningarnar til að skrá vorgögnin.]]></description>
Góður gangur í DNA sýnatökum samhliða sauðburði
Það sem af er ári er búið að afgreiða um 67.000 hylki til bænda vegna DNA sýnatöku, sem er aðalega vegna arfgerðargreiningar á riðumótstöðu. Útlit er fyrir að þátttaka í greiningum verði heldur meiri í ár en á síðasta ári en það er fagnaðarefni sá mikli kraftur sem er í bændum í þessu verkefni. Megnið af hylkjunum fóru út í lok apríl og byrjun maí og því miður er lagerinn tómur eins og er. Von er á nýrri sendingu sem leggur af stað frá Þýskalandi í þessari viku en verður því ekki klár til afgreiðslu fyrr en eftir næstu helgi. ]]></description>
Gallar, greiningar og gagnaskráning
Nú er sauðburður víðast hvar kominn í gang og fátt skemmtilegra en að taka á móti lömbunum þegar vel gengur. En stundum koma fram einhverjir gallar. Sumt getur verið eitthvað tilfallandi sem veldur því að lambið fæðist ekki eðlilega þroskað, hugsanlega tengt fóðrun eða öðrum umhverfisþáttum. En stundum er um að ræða galla sem erfast. Eins er með ærnar, það eru ýmsir gallar sem geta komið fram hjá ánum sem dregur úr endingu þeirra. Upplýsingar um allt slíkt er gagnlegt að halda til haga.]]></description>
Leví í lagi
Í haust kom fram tilkynning um að hrúturinn Leví 25-832 frá Hófgerði bæri erfðavísi fyrir bógkreppu. Niðurstöður voru reyndar ekki tryggar, því illa hafði gengið að greina sýni úr honum og niðurstaða barst ekki fyrr en sæðingar voru komnar á fullt og aðeins frá annarri rannsóknarstofunni sem hafði þá gert endurtekna greiningu á sýninu. En öll bógkreppu sýni sl. haust úr stöðvahrútum voru bæði greind hérlendis og erlendis.]]></description>
Afkoma sauðfjárbænda 2022-2024
Út er komin skýrsla frá RML um rekstur og afkomuþróun sauðfjárbúa fyrir árin 2022-2024. Sú skýrsla er unnin út frá rekstrargögnum samtals 199 sauðfjárbúa af landinu öllu. Innlagt dilkakjöt þátttökubúanna var 28,8% af heildarframleiðslu dilkakjöts árið 2024. Það hlutfall, ásamt samanburði á gögnum frá fyrra ári, bendir til að gögnin gefi góða mynd af stöðu og þróun í greininni. ]]></description>
dkBúbót liggur niðri eins og er - Unnið er að viðgerð
Viðskiptavinir athugið að dkBúbót liggur niðri í augnablikinu en unnið er að viðgerð. ]]></description>
Fagfundur sauðfjárræktarinnar – verðlaunahafar og upptaka af fundinum
Vel var mætt til fundar á Hótel Laugarbakka sl. laugardag. Fagfundur sauðfjárræktarinnar var þar haldinn fyrir troðfullum sal af fólki. Á fundinum voru flutt nokkur erindi sem góður rómur var gerður að og æðstu verðlaun sauðfjárræktarinnar veitt. Neðst í þessari frétt er hlekkur á upptöku af erindum. Eftirtalin verðlaun voru veitt á fundinum: Ræktunarbú ársins - Eyþór Pétursson og Agnes Einarsdóttir, ábúendur í Baldursheimi 3 tóku á móti Halldórsskyldinum sem nú var veittur í fimmta sinn fyrir sauðfjárræktunarbú ársins. ]]></description>
Fagfundur sauðfjárræktarinnar
Hinn árlegi fagfundur sauðfjárræktarinnar sem fagráð í sauðfjárrækt stendur fyrir verður haldinn á Hótel Laugarbakka í Miðfirði laugardaginn 11. apríl. Fundurinn hefst kl. 12:30. Fundurinn er öllum opinn og streymt verður frá fundinum.]]></description>
Greiningar á frjósemiserfðavísum, bógkreppu eða gulri fitu
Samhliða samningum RML við MATÍS um framkvæmd riðuarfgerðargreininga bjóðast nú betri kjör á öðrum arfgerðargreiningum sem greind eru á vegum RML hjá MATÍS vegna samlegðaráhrifa.  Byggist hagstætt verð á „öðrum arfgerðargreiningum“  m.a. á því að sýnum sé safnað upp og greind á nokkra mánaða fresti, en kostnaðarsamt er að greina aðeins örfá sýni í senn. Þannig er gert ráð fyrir að sýni vegna annarra arfgerðagreininga en vegna riðu mótstöðu sem komið hafa inn í vetur verði greind seinnipartinn í apríl.  Sýni sem eiga að ná inn í þessa greiningu þurfa því að berast fyrir 15. apríl til RML.]]></description>
Afkvæmarannsóknir á hrútum 2025 – framkvæmdar af bændum
Samantekt um styrkhæfar afkvæmarannsóknir á hrútum 2025 sem framkvæmdar voru af bændum liggur nú fyrir og er aðgengileg á heimasíðu RML. Alltaf er hætta á við svona samtektir að villur slæðist inn. Þegar hafa borist tvær ábendingar og verður beðið í nokkra daga með að lagfæra þau atriði ef fleiri villur leynast þarna. Bændur eru því hvattir til að lesa yfir a.m.k. það sem að þeirra búi snýr og senda athugasemdir á ab@rml.is ef þörf er á. Stefnt er á að gera grein fyrir helstu niðurstöðum í Bændablaðinu á næstunni.]]></description>
Riðuarfgerðargreiningar 2026
Fyrirkomulag og framkvæmd arfgerðagreininga verða með mjög svipuðu sniði í ár og á síðasta ári. Líkt og áður hefur verið kynnt er það Matís sem nú sér um greiningarnar fyrir RML, en gagnvart bændum er fyrirkomulagið það sama og áður, þ.e.a.s. að sýnum er skilað inn á starfstöðvar RML í Reykjavík og á Hvanneyri. Þar sem öll sýni eru skönnuð inn við móttöku hjá RML er ekki í boði að senda sýnin beint til Matís. ]]></description>
Forskráning á DNA hylkjum
Þau sýni sem afgreidd voru frá RML fyrir áramót og fyrri hluta janúar eru með Íslenska erfðagreiningu skráða sem greiningaraðila. Nú hefur verið skipt um greiningaraðila og öll sýni sem forskráð eru þessa dagana eru send til greiningar hjá Matís. Þetta hefur aðeins vafist fyrir notendum þegar þau forskrá sýni í Fjárvís, þar sem greiningaraðilinn er skráður Íslensk erfðagreining og því er ekki hægt að breyta, en öll sýnin eru send til greiningar í Matís. Notendur þurfa þó ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu, þar sem greiningaraðilinn breytist sjálfkrafa þegar sýnin eru send frá starfsstöð til Matís. ]]></description>
Uppgjör skýrsluhalds sauðfjár 2025
Uppgjöri skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir árið 2025 er að mestu lokið þó leynist ófrágengnar „eftirlegukindur“ á nokkrum búum. Nánari grein verður gerð fyrir niðurstöðunum í næsta Bændablaði.]]></description>
Lagfæringar á fósturtalningu og fósturyfirliti
Nú eftir hádegið fór í loftið uppfærsla á Fjárvís.is sem snýr að skráningu á fósturtalningu, yfirliti yfir talin fóstur og fangyfirliti. Yfirlit yfir talin fóstur er orðið aðgengilegt á ný, en það er staðsett í fangyfirlitinu. Þá var skráning fóstra lagfærð þannig að auðveldara er að velja marga gripi í einu og fangyfirlit lagað þannig að athugasemdir í fósturtalningu eru nú sjáanlegar í dálknum „Athugasemd talningar“ í fangyfirliti. Í skráningu fyrir fósturtalningu er blátt spurningamerki efst í gripalistanum. Ef smellt er á spurningamerkið birtast frekari leiðbeiningar um hvernig er hægt að velja marga gripi samtímis úr listanum.]]></description>
Innlestur á arfgerðargreiningum frá Matís er hafinn
Eins og flestum er nú kunnugt hefur Matís tekið við að greina arfgerðarsýni sauðfjár.  Núna eru greiningar í fullum gangi og við erum byrjuð að lesa inn í Fjárvís langþráðar niðurstöður.
Lokafrestur til að „sækja um“ hvatastyrki vegna sauðfjársæðinga er fimmtudagurinn 8 janúar 
Forsenda þess að bændur fái greidda hvatastyrki frá Atvinnuvegaráðuneytinu vegna sæðinga með hrútum sem bera V eða MV arfgerðir, er að sæðingarnar séu skráðar í Fjárvís. Skráningum þarf að ljúka eigi síðar en fimmtudaginn 8. janúar, (skráningum þarf að vera lokið fyrir 9. janúar 2026). Sæðingar þarf að skrá undir „skrá sæðingu“ í Fjárvís (ekki undir „skrá fang“). Til að sækja um hvatastyrkinn þarf í raun ekki að gera annað en að ganga frá þessum skráningum.]]></description>
Metþátttaka í sauðfjársæðingum
Metþátttaka í sauðfjársæðingum og flestir skammtar sendir úr 25-828 Völusteini frá Villingadal]]></description>