    <language>is</language>
Nautgriparækt | Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar að maímánuði nýliðnum
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nú þegar maímánuður er horfinn í safn tímans, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað upp úr hádegi þann 11. júní. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem finna má tengil í neðst í fréttinni.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 416 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær til 112 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 23.839,1 árskýr á búunum 416 var 6.732 kg. eða 7.018 kg. OLM]]></description>
Þrettán ný naut í notkun
Nú koma þrettán ný naut til notkunar og þar af stendur kyngreint sæði (X-sæði) til boða úr sjö þeirra auk þess sem aftur kemur slíkt sæði til dreifingar úr Jöfri 24010. Þá mun Y-sæði, þ.e. sæði sem gefur nautkálfa, standa til boða úr fjórum þessara nauta en það er nýjung. Við skulum fyrst fara yfir hvaða naut fara úr notkun og hver verða áfram í dreifingu. Úr dreifingu verða teknir Meistari 23038, Draupnir 23040, Stjóri 23041, Bolli 24002, Valens 24003, Biggi 24004, Hálsi 24006, Sjafnar 24007, Kládíus 24011, Tumi 24014 og Andi 24015. Þeir teljast allir annað hvort fullnotaðir eða náðu ekki þeim vinsældum að ástæða sé til að hafa þá áfram í notkun. Þau naut sem verða áfram í dreifingu eru Oddi 24008, Alur 24009, Jöfur 24010, Versalur 24017 og Nemó 24018. Rétt er að taka fram að verulega er farið að ganga á birgðir úr sumum þeirra.]]></description>
Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar eftir nýliðinn apríl
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nú að nýliðnum apríl, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað um hádegisbilið þann 11. maí. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem finna má tengil í neðst í fréttinni.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 410 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær nú til 111 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 23.627,6 árskúa á búunum 410 var 6.729 kg.]]></description>
Mjólkaði meira en 14 tonn á fyrsta kálfi
Það er ávallt gaman að segja frá því sem fram úr skarar og er allrar athygli vert. Við uppgjör skýrsluhaldsins fyrir árið 2025 kom í ljós að afurðahæsta kýrin í Nautgriparæktarfélagi Hraungerðishrepps og Ölfuss var kýr sem var að mjólka á sínu fyrsta mjólkurskeiði. Það er svo sem ef til vill ekkert einsdæmi en það sem er öllu athyglisverðara er afkastageta þessa grips sem um ræðir. Ástrós 025 á Brúnastöðum í Flóa mjólkaði á síðasta ári 12.907 kg mjólkur með 3,90% fitu og 3,47% próteini. Hún bar 25. nóvember 2024 og örðum kálfi 25. mars 2026. Mjólkurskeiðsafurðirnar urðu því 14.410 kg. Hæsta skráða dagsnyt hjá henni á 1. mjólkurskeiði var 42,8 kg í janúar 2025 og hún var í 40 kg dagsnyt í lok apríl á síðasta ári. Dagsnytin fór ekki niður fyrir 30 kg fyrr en við lok október s.l.]]></description>
Afkoma mjólkurframleiðenda 2022-2024
Komin er út skýrsla um rekstur og afkomu í mjólkurframleiðslu fyrir árin 2022-2024 en hún byggir á gögnum frá 200-204 kúabúum. Á árinu 2024 var mjólkurframleiðslan á þessum búum samtals um 52,4% af innlagðri mjólk á landvísu.]]></description>
dkBúbót liggur niðri eins og er - Unnið er að viðgerð
Viðskiptavinir athugið að dkBúbót liggur niðri í augnablikinu en unnið er að viðgerð. ]]></description>
Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn mars
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nánar til tekið nú að loknum marsmánuði, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað undir hádegi þess 13. apríl. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem tengillinn neðst í fréttinni vísar til.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 428 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær að þessu sinni til 112 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 24.506,1 árskýr á búunum 428 var 6.701 kg.]]></description>
Skýrsla um afkomu nautakjötsframleiðenda 2022-2024
Komin er út skýrsla um rekstur og afkomu í nautaeldi fyrir árin 2022-2024 en hún byggir á gögnum frá 36-40 nautgripabúum. Á árinu 2024 var nautakjötsframleiðslan á þessum búum samtals um 24% af framleiðslu ungnautakjöts á landsvísu.
Skýrslan lýsir jákvæðri þróun í afkomu búanna á tímabilinu. Þó að tap sé ennþá á framleiðslu nautakjöts að jafnaði sjást skýr merki um bættan rekstur á þessum árum.]]></description>
Breytingar á kynbótamati og heildareinkunn
Síðast liðið haust endurskoðaði Jón Hjalti Eiríksson hjá Landbúnaðarháskóla Íslands hagrænt vægi eiginleika kynbótamats í nautgriparækt í samvinnu við Julie Clasen hjá SimHerds í Danmörku. Sú vinna leiddi í ljós að skynsamlegt væri að gera örlitlar breytingar á vægi eiginleika í samsettum einkunnum kynbótamatsins og á heildareinkunn. Niðurstöðurnar er að finna í Riti LbhÍ nr. 183, Endurskoðun heildareinkunnar kynbótamats fyrir íslenskar mjólkurkýr sem birt er bæði á heimasíðum Landbúnaðarháskólans (www.lbhi.is) og RML (www.rml.is).
Fagráð í nautgriparækt ákvað svo að gera breytingar með hliðsjón af þeim tillögum sem Jón Hjalti og Julie lögðu til. Þannig var ákveðið að setja neikvætt vægi á mjólkurmagn í einkunn fyrir afurðir í stað þess að hafa vægi á prótein hlutfalli. Þessi aðferð þykir betri til þess að halda uppi efnainnihaldi mjólkur með það í huga að kostnaður við að flytja vatn er talsverður. Vægi eiginleika í afurðaeinkunn var því breytt þannig að fitumagn vegur 42%, próteinmagn 50% og mjólkurmagn -8%.]]></description>
Kynbótaskipulag fyrir íslenska kúastofninn með erfðamengjaúrvali
RML hefur gefið út skýrsluna Kynbótaskipulag fyrir íslenska kúastofninn með erfðamengjaúrvali – Samanburður mögulegra kynbótakerfa með tilliti til erfðaframfara og skyldleikaræktar. Höfundar eru Þórdís Þórarinsdóttir, Jón Hjalti Eiríksson og Guðmundur Jóhannesson. Í skýrslunni eru kynntar niðurstöður verkefnis sem unnið var á árunum 2024-26 í samstarfi RML, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólans í Árósum og Viking Genetics. Meginniðurstöður þeirrar voru birtar í nóvember-hefti Journal of Dairy Science í fyrra en skýrslan greinir frá niðurstöðum á íslensku ásamt því að fjalla um frekari greiningar og niðurstöður út frá hagnýtingu fyrir kynbótakerfið og kostnaði.]]></description>
Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar nú við lok febrúar 
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nánar til tekið við lok febrúar, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað að morgni þess 11. mars. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem finna má tengil í neðst í fréttinni.
Reiknuð meðalnyt 24.360,4 árskúa á búunum 428 var 6.674 kg. eða 6.945 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) ]]></description>
Vænting 1271 er ellefta íslenska kýrin til að rjúfa 100 þús. kg múrinn
Afrekskýrin Vænting 1271 í Gunnbjarnarholti í Eystrihreppi rauf 100 þús. kg múrinn nú í lok febrúar og er þar með ellefta íslenska kýrin til að gera slíkt. Vænting er fædd 17. apríl 2013 í Skáldabúðum en flutti aðsetur sitt við flutning búsins að Gunnbjarnarholti á sínum tíma. Hún hafði nú um mánaðamótin febrúar/mars mjólkað 100.158 kg mjólkur. Við mælingu 28. febrúar s.l. var Vænting í 18,6 kg dagsnyt þannig að hún hefur að öllum líkindum mjólkað sínu 100 þúsundasta kg mjólkur þann 20. febrúar eða þar um bil.]]></description>
Áhrif mismunandi kornskammta á vaxtarhraða holdablendinga - ný skýrsla RML
RML hefur birt nýja skýrslu um umfangsmikla fóðurathugun sem framkvæmd var í Hofsstaðaseli á árunum 2022–2024. Markmið verkefnisins var að meta áhrif mismunandi kornskammta á vöxt holdablendinga, eldistíma og rekstrarafgang við innieldi. Í tilrauninni voru 108 nautkálfar skiptir í þrjá fóðurflokka (0%, 20% og 36% korn) og þrjá aldurshópa. Niðurstöður sýna skýrt að aukið kornhlutfall styttir eldistíma verulega og eykur daglegan vöxt án þess að hafa neikvæð áhrif á gæðaflokkun kjöts (EUROP). Naut sem fengu 36% korn náðu 630 kg lífþunga 117 dögum fyrr en þau sem fengu eingöngu gróffóður.]]></description>
Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn janúar
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nú þegar janúarmánuður er þegar liðinn hjá, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað að morgni þann 12. febrúar. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem tengill er í neðst í fréttinni.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 432 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar nær að þessu sinni til 113 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu.
Reiknuð meðalnyt 24.570,1 árskýr á búunum 432 var 6.669 kg.]]></description>
Ársuppgjör nautgriparæktarinnar 2025
Hér á eftir er farið yfir helstu niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar hér á landi fyrir árið 2025. Fyrri hluti greinarinnar er samhljóða þeirri sem nú birtist í Bændablaðinu en yfirferðin um niðurstöður skýrsluhaldsins í nautakjötsframleiðslunni birtist vonandi þar ekki síðar en í næsta blaði. Eins og gefur að skilja þarf svona yfirlit ákveðinn undirbúning og því þarf einn daginn að ákveða að bíða ekki lengur eftir upplýsingum þeim sem enn kunna að vera ókomnar inn í grunn þann sem gögnin sem unnið er með eru sótt í. Sem dæmi má nefna voru upplýsingarnar um kjötframleiðsluna sóttar til vinnslu fyrir allnokkrum dögum síðan og svipað gildir um mjólkurframleiðsluna, þannig að gögn sem bárust síðar eða eiga eftir að berast ná því miður ekki inn í uppgjörið. Telja má þó víst að þær tölur sem ekki náðu inn fyrir miðjan mánuðinn, breyti litlu sem engu um landsmeðaltöl því heimtur gagna mátti telja góðar á þeim tíma. Fyrst lítum við yfir mjólkurframleiðsluna en fast á eftir fylgir sú yfirferð sem varðar kjötframleiðsluna á nýliðnu ári. Töflur með ítarlegri upplýsingum en þeim sem birtast í greininni sjálfri má finna hér.]]></description>
Hefur eignast tíu kálfa í fimm burðum
Á mánudagskvöldið (26. janúar s.l.) eignaðist Stjarna 996 í Káranesi í Kjós tvíkelfinga, tvær kvígur. Þetta væri svo sem ekki fréttnæmt nema af því að kýrin var að eignast tvíkelfinga í fimmta sinn, hefur aldrei eignast nema tvíkelfinga. Slíkt er einstakt, í það minnsta afar fáheyrt. Stjarna hefur nú eignast 8 kvígur og 2 naut í fimm burðum. Að sögn ábúenda í Káranesi (á karanes.is) gekk burðurinn gekk vel, Stjarna sá um það sjálf, án utan að komandi aðstoðar. Kvígurnar tvær sem fæddust hafa fengið nöfnin Pandóra og Díóna, en "stjörnufræðin" er þemað í nafngiftum afkvæma Stjörnu.]]></description>
Rekstur mjólkur- og nautakjötsframleiðenda 2021-2024 - helstu niðurstöður
RML hefur tekið saman helstu niðurstöður úr rekstrarverkefnum hjá mjólkur- og nautakjötsframleiðendum en þessi verkefni byggja fyrst og fremst á þátttöku bænda og góðu samstarfi við þá. Breytileiki í afkomu búanna er mikill og ræður þar talsvert miklu afurðasemi búanna, fjármagnskostnaður, nýting á landi og aðkeyptum aðföngum.]]></description>
Nýtt ár heilsar með nýjum nautum
Nú heilsar nýja árið með átta nýjum nautum í notkun og á sama tíma fara níu naut úr dreifingu. Þau naut sem koma ný inn eru Sjafnar 24007 frá Syðri-Bægisá í Öxnadal, sonur Billa 20009 og Sjafnar 901 Knattardóttur 16006, Oddi 24008 frá Hólmahjáleigu í Landeyjum, undan Hengli 20014 og Oddu 1707 Piparsdóttur 12007, Alur 24009 frá Dæli í Fnjóskadal, undan Pinna 21029 og 1306 Knattardóttur 16006, ...]]></description>
Fræðslufundur – fjósbyggingar, flökkustraumur & atferli kúa
RML býður bændum á fræðslufund með dönskum sérfræðingi í fjósbyggingum og hönnun, þar sem farið verður yfir lykilatriði er varða rafmagnsöryggi í fjósum, flæði og atferli kúa.Tveir ráðunautar RML verða einnig með á fundinum. Á fundinum verður fjallað um (1) flökkustraum í fjósum – hvað hann er, hvaða áhrif hann hefur og hvernig má greina hann út frá atferli kúa (2) hvernig atferli kúa gefur til kynna möguleg rafmagnsvandamál (3) næstu skref til að greina og leysa úr vandamálum (4) flæði í fjósum og áhrif þess á hreyfingu, ró og hegðun kúa. Eftir erindið verður farið í Hvanneyrarfjós, þar sem sérfræðingurinn leiðir vettvangsskoðun.
Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn nóvember
Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar fyrir síðastliðna 12 mánuði, nú þegar nóvembermánuður er á enda, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað þegar komið var fram á miðjan dag þann 11. desember. Hér á eftir er farið yfir nokkur atriði úr niðurstöðunum en meiri upplýsingar má finna í töflunum sem tengill er í neðst í fréttinni.
Reiknuð meðalnyt 24.209,6 árskúa á búunum 428 var 6.630 kg. eða 6.883 kg. OLM]]></description>