    <language>is</language>
Jarðrækt | Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Rekstrargreining garðyrkju
Út er komin skýrslan „Rekstrargreining garðyrkju á Íslandi 2022-2024“ þar sem koma fram helstu niðurstöður úr verkefni í afkomugreiningu garðyrkjunnar.
Verkefnið sem þessi skýrsla byggir á er framhald verkefna sem unnin hafa verið af RML á síðustu árum þar sem leitast er við að varpa ljósi á rekstrarafkomu í garðyrkju á Íslandi á árunum frá 2019. Í þessari skýrslu er mest unnið með árin 2022-2024.
Sáðvörulisti 2026
Fyrstu söluaðilar eru búnir að gefa út sáðvöruframboð sitt fyrir vorið og því er kominn tími til að byrja að huga að sáðvörukaupum. Ráðunautar RML  taka saman framboð fræsala af sáðvöru líkt og undanfarin ár. Ýmis ný og gömul yrki eru í boði en við áréttum mikilvægi þess að kynna sér vel hugsanlegan mun á yrkjum einstakra tegunda enda getur verið mikill munur á frammistöðu þeirra þó þau tilheyri sömu tegundinni. ]]></description>
Styrkir til markvissari og loftslagsvænni áburðarnotkunar
Umhverfis,-  orku-  og loftslagsráðuneytið og atvinnuvegaráðuneytið hafa ákveðið að ráðstafa 80 milljónum í loftslags- og orkusjóð til fjárfestinga í tækjakaupum sem stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda í landbúnaði. Ráðunautar RML veita ráðgjöf og aðstoð við gerð styrkumsókna.]]></description>
Nú er tími haustskýrslna!
Síðasti skiladagur haustskýrslna er fimmtudaginn 20. nóvember. Á heimasíðu RML (www.rml.is) má finna ítarlegar leiðbeiningar fyrir búfjáreigendur sem vilja skila skýrslum sjálfir.]]></description>
Starfsdagar RML 5.-7. nóvember 2025
Sameiginlegur vinnufundur starfsfólks RML stendur yfir dagana 5.-7. nóvember.
Á vinnufundinum kemur starfsfólk fyrirtækisins saman og vinnur að ýmsum verkefnum tengdu starfinu og þróun fyrirtækisins.
Að þessu sinni er hann haldinn á Akureyri.
Þessa daga verður því ekki hægt að ná beinu sambandi við starfsfólk okkar og ekki er viðvera á starfsstöðvum.
Skil á skýrsluhaldi í Jörð.is
Smám saman bætist við í skiluðum jarðræktarskýrslum í Jörð.is. Núna hafa 184 bú skilað skýrslu með upplýsingum um ræktun, áburðargjöf og uppskeru fyrir 3701 spildu. Ef bændur þurfa aðstoð við útfyllingu jarðræktarskýrsluhaldsins t.d. þegar lagfæra þarf túnkort þá er mikilvægt að hafa samband við okkur hjá RML sem allra fyrst. Umsóknarfrestur um landgreiðslur og jarðræktarstyrki rennur út 1. október. ]]></description>
Er jarðræktarskýrsluhaldið í Jörð.is skráð?
Þessa dagana eru töðugjöld haldin víða um land eftir gott heyskaparár. Þá er heldur ekki eftir neinu að bíða með að ganga frá skráningum á jarðræktarskýrsluhaldinu í Jörð.is. 
Þó svo að uppskeran sé ef til vill ekki öll komin í hús eða plast þá er skynsamlegt að ganga frá skráningum á ræktun, áburðargjöf og a.m.k. fyrsta slætti sem fyrst, þannig að létt verk verði að klára skráningar tímanlega fyrir umsóknarfrest jarðræktarstyrkja og landgreiðslur sem er 1. október.
Sumarfrí í júlí 2025 - viðvera á starfsstöðvum og símsvörun
Í júlí er víða lítil viðvera á starfsstöðvum RML vegna sumarleyfa starfsfólks.
Því getur verið að erindi fái ekki afgreiðslu fyrr en að þeim loknum í byrjun ágúst.
Aðalnúmer RML 516-5000 er opið sem hér segir: 
Mánudaga – fimmtudaga; kl 9-12 og 13-16.
Föstudaga; kl 9-12. Eftir hádegi á föstudögum er lokað.
Þrír slættir – aukin uppskera
Í ár voraði óvenju snemma með miklum hlýindum víða um land. Spretta hófst því fyrr en venjulega sem getur skapað mögulegt tækifæri til þriggja slátta á túnum í góðri rækt. Hafa þarf samt í huga þegar uppskera er mikil er meira af áburðarefnum fjarlægð úr jarðvegi með uppskerunni, huga þarf því vel að áburðargjöf í þessum aðstæðum og bæta upp það sem er tekið svo við söxum ekki of mikið á næringarforðann í jarðveginum.]]></description>
Veðurmælingar og mygluspá fyrir kartöflubændur
Líkt og undanfarin ár þá starfrækir RML þrjár sjálfvirkar veðurstöðvar sem tengdar eru við mygluspárkerfi Euroblight í Danmörku. Stöðvarnar eru staðsettar í Þykkvabæ, Eyjafirði og Hornafirði nærri ræktunarsvæðum kartöflubænda. Með mygluspánni geta bændur fylgst með mygluhættu jafnóðum og þannig beitt markvissari og öruggari vörnum gegn kartöflumyglu.]]></description>
Mælaborð í Jörð.is
Í nýjustu útgáfu af Jörð.is er búið að bæta við „mælaborði“ þar sem bændur geta fylgst með stöðu skráninga á sínu búi, bæði með tölulegum upplýsingum og með myndrænni framsetningu á korti. Einnig er komin ný frétta- og tilkynningasíða í mælaborðið þar sem meðal annars koma fram upplýsingar um skiladaga skýrsluhaldsins. Sem dæmi er núna hægt að skoða á korti á hvaða tún búið er að skrá áburðargjafir, kölkun, ræktun og uppskeru. Þá er hægt að sjá á litakvarða hversu langt er síðan túnin voru síðast endurræktuð og upplýsingar um uppsöfnun búfjáráburðar.]]></description>
Sáðvörulisti 2025
Nú er kominn sá tími að huga þarf að sáðvörukaupum fyrir vorið. Ráðunautar RML hafa tekið saman framboð fræsala af sáðvöru líkt og undanfarin ár. Ýmis ný og gömul yrki er í boði en við áréttum mikilvægi þess að kynna sér vel hugsanlegan mun á yrkjum einstakra tegunda enda getur verið mikill munur á frammistöðu þeirra þó þau tilheyri sömu tegundinni. ]]></description>
Aðstoð við gerð áburðaráætlana 2025
Áburðarkaup eru stór kostnaðarliður í búrekstri og því mikilvægt að vanda sig við þau, kaupa réttu tegundirnar, ekki meira en þarf en samt nóg til að spara sér ekki til skaða. Með því að stilla saman væntingar til magns uppskeru og heygæða er gott að taka tillit til ólíkra eiginleika túna innan búsins, ræktunarsögu þeirra og fyrirhugaðra nota svo hægt sé að ná markvissari nýtingu búfjáráburðar og vali á hentugri tegund tilbúins áburðar.]]></description>
Vilt þú vera með í Bændahópi?
RML bauð upp á nýtt form ráðgjafar í byrjun árs 2023 sem byggir á jafningjafræðslu þar sem ráðunautar stýra umræðu og halda utan um efnisrammann. Fyrirmyndin er sótt til Finnlands en þar hafa bændur náð góðum árangri og sumir hópar haldið saman í fjölda mörg ár. Mjög góður árangur hefur náðst til dæmis varðandi aukna og betri uppskeru og bætta nýtingu aðfanga. Erlendis er þetta form ráðgjafar nefnt Discussion groups og aðferðin er aðeins breytilegt milli landa sem skýrist að einhverju leiti af menningarmun og mismiklu utanumhaldi.]]></description>
Sóknarfæri og áskoranir vegna framleiðslu graspróteins á Íslandi - Skýrsla
Mikill áhugi hefur verið víða erlendis síðustu ár á framleiðslu próteins úr grasi. Sett hafa verið á fót stór rannsóknarverkefni, meðal annars í Danmörku, sem snúa að ýmsum þáttum próteinvinnslunnar sjálfrar sem og nýtingu þess sem fóðurs fyrir einmaga dýr.
Hey- og jarðvegssýnataka 2024
Öfgarnar í veðrinu ættu að ekki að hafa farið fram hjá neinum í sumar, en þær hafa valdið áskorunum í gróffóðuröfluninni. Þurrkar voru til vandræða á Austurlandi framan af sumri á meðan var mikil vætutíð á Suður- og Vesturlandi, því voru þar ekki margir gluggar til að ná fyrri slætti í góðum þurrki. Töluvert kaltjón var á túnum á Norður- og Austurlandi og því stærri hluti heyforða nýræktir og/eða grænfóður til að ná viðunandi uppskeru. Allt þetta hefur áhrif á gæði og eðli gróffóðursins sem getur valdið miklum breytileika milli ára.]]></description>
Umsóknarfrestur um jarðræktarstyrki og landgreiðslur er 1. október
Umsóknarfrestur um jarðræktarstyrki og landgreiðslur rennur út á miðnætti þriðjudaginn 1. október. Þeir sem þurfa aðstoð við skráningar eða túnkortagerð þurfa að hafa samband við RML sem fyrst svo hægt verði að tryggja skil á réttum tíma. Þegar búið er að skrá ræktun, uppskeru og áburðargjafir þessa árs er farið í „Skýrslur“ í Jörð.is og þar valið „Skrá skýrslu“. Ef upp koma athugasemdir þarf að skoða hvort að gleymst hefur að skrá eitthvað. Ef upp koma rauðar athugasemdir verður að lagfæra þær áður en hægt er að skila skýrslu í Jörð. Mikilvægt er að fara neðst á síðuna þegar búið er að velja „skrá skýrslu“ og þar verður að velja „Vista skýrslu í Jörð og senda hana til ráðuneytis“.]]></description>
Afurðatjón vegna illviðra í júní
Inni á Bændatorginu er nú búið að opna á skráningarform fyrir afurðatjón sem bændur urðu fyrir í hretinu í byrjun júní sl. Ljóst er að ástæður afurðatjóna geta verið af ýmsum toga, bæði á búfé og ræktunarlöndum. Skráningarkerfið gerir ráð fyrir að tjón séu flokkuð með ákveðnum hætti en einnig er hægt að skrá önnur tjón sem falla þar fyrir utan. Þýðingarmikið er að skráningar gefi eins glögga mynd af umfangi tjónsins og mögulegt er.]]></description>
Ráðunautur í jarðrækt
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir starfsmanni sem gæti sinnt fjölbreyttu þróunar- og ráðgjafarstarfi á sviði jarðræktar, fóðrunar og umhverfismála. Starfs- og ábyrgðarsvið: Þátttaka í ráðgjafateymum RML sem sinna jarðræktar-fóðrunar og umhverfismálum, vinna við almennar leiðbeiningar í jarðrækt og á útiræktuðu grænmeti, ráðgjöf í jarðvinnslu, áburðargjöf og val á yrkjum opg þróun, sala á ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við aðra starfsmenn RML og önnur verkefni s.s. líkanagerð í excel og þróunarverkefni.]]></description>
Heimsóknir ráðunauta í kornakra í júní 2024
Benny Jensen ráðunautur frá BJ-Agro í Danmörku kemur til landsins mánudaginn 10. júní næstkomandi. Hann mun heimsækja bú og skoða kartöflugarða en einnig mun hann skoða kornakra en síðustu ár hefur RML boðið upp á kornskoðun með Benny bændum að kostnaðarlausu. Reynt er að horfa til þess að dreifa staðsetningum milli ára eins og hægt er.]]></description>