    <language>is</language>
Bútækni og aðbúnaður | Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Sumarfrí í júlí 2025 - viðvera á starfsstöðvum og símsvörun
Í júlí er víða lítil viðvera á starfsstöðvum RML vegna sumarleyfa starfsfólks.
Því getur verið að erindi fái ekki afgreiðslu fyrr en að þeim loknum í byrjun ágúst.
Aðalnúmer RML 516-5000 er opið sem hér segir: 
Mánudaga – fimmtudaga; kl 9-12 og 13-16.
Föstudaga; kl 9-12. Eftir hádegi á föstudögum er lokað.
Fjárfestingastuðningur – umsóknarfrestur
Nú styttist óðfluga í lokafrest umsókna um fjárfestingastuðning vegna fyrirhugaðra framkvæmda ársins 2025, ásamt því að framhaldsumsóknum þarf að skila inn fyrir þau verkefni sem það á við. Umsóknarfrestur fyrir umsóknir í sauðfjárrækt er 15. mars og umsóknarfrestur fyrir umsóknir í nautgriparækt er 31. mars. Framkvæmdir sem eru yfir einni milljón króna eru styrkhæfar og er allt styrkhæft sem viðkemur endurnýjun, endurbótum og nýbyggingum. Þess ber þó að geta að tæknibúnaður er ekki styrkhæfur, nánari upplýsingar um það veita ráðunautar.]]></description>
Vantar þig aðstoð við hönnunarráðgjöf tengda fjárfestingastuðningi í nautgripa- eða sauðfjárrækt?
Minnt er á að huga snemma að aðstoð með hönnunarráðgjöf og aðbúnaðarteikningar varðandi endurbyggingu/breytingum eða nýbyggingum tengda fjárfestingastuðningi. Til að tryggja að nægur tími verði til að sinna öllum þeim sem óska eftir aðstoð RML, er ráðlagt að hafa samband í tíma. Ýtarlega var farið yfir ferli aðstoðar í fréttatilkynningu frá því í ágúst 2023 og má finna í tengil hér neðar.]]></description>
Fjárfestingastuðningur - teikningar á aðbúnaði, kostnaðaráætlun og aðstoð við umsókn
Samkvæmt reglugerð um stuðning í nautgriparækt (348/2022) og í sauðfjárrækt (144/2022) eru greidd framlög vegna framkvæmda þar sem markmiðið er að stuðla að bættum aðbúnaði gripa, hagkvæmari búskaparháttum og aukinni umhverfisvernd. Umsóknafrestur vegna þessa stuðnings er 15. mars ár hvert fyrir sauðfjárræktina en 31. mars fyrir nautgriparæktina. Framkvæmdir eldri en 12 mánaða eru ekki gjaldgengar. Hægt er að sækja um styrk samfellt í þrjú ár vegna sömu framkvæmdar eða þar til hámarksstuðningi er náð.]]></description>
Sumarfrí í júlí 2023 - viðvera á starfsstöðvum og símsvörun
Í júlí er mikið af starfsfólki RML í sumarfríi og því stopul viðvera á starfsstöðvum. Síminn 516-5000 verður þó alltaf opinn hjá okkur sem hér segir:
Mánudaga - fimmtudaga milli kl. 9-12 og 13-16. Lokað er í hádeginu milli kl. 12-13 
Föstudaga kl. 9-12 en lokað er á föstudögum frá kl. 12.00 
Senda má gögn og fyrirspurnir á eftirfarandi netföng:
Ráðunautar RML fóru á samræmingarráðstefnu Norðurlandanna í byggingum og bútækni
Í lok apríl hittust um 35 ráðunautar/ráðgjafar frá Norðurlöndum á ráðstefnu til að skoða og ræða um það helsta á sviði bygginga- og bútækni. Ráðstefnan var haldin í Billund í Danmörku. Þrír ráðunautar RML fóru, Anna Lóa Sveinsdóttir, Ditte Clausen og Linda Margrét Gunnarsdóttir. Dögunum var skipt í fyrirlestra og heimsóknir. Sýnt var frá heimsóknunum á Snapchat-reikningi RML.]]></description>
Breytt verklag við förgun mjólkurkúa
Eftirfylgni með reglum varðandi mjólkandi kýr sem koma til slátrunar hefur verið hert til þess að stuðla að aukinni velferð. Sláturleyfishafar hafa því breytt hjá sér verklagi varðandi flutninga á þann hátt að mjólkurkýr verða sóttar eins seint og hægt er að deginum og samdægurs þegar og þar sem því verður við komið. Einnig munu mjólkurkýr verða teknar fyrst að morgni til slátrunar í stað ungneyta. Þessar ráðstafnir snerta bændur í einhverjum tilvikum og er óskað eftir því við bændur að virkja eftirfarandi verklag:]]></description>
Þjónustukönnun RML á Bændatorgi
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins leggur mikinn metnað í að veita bændum um allt land góða þjónustu og við leitum stöðugt leiða til að bæta ráðgjöf okkar enn frekar. Því hvetjum við bændur til að taka þátt í þjónustukönnun okkar sem er aðgengileg inni á Bændatorginu undir fréttum. Könnunin er stutt og ætti ekki að taka nema 3 til 4 mínútur að svara henni og niðurstöður er ekki hægt að rekja til einstakra svarenda.
Það er okkur mjög mikils virði að fá sem flest svör til þess að við getum haldið áfram að efla og bæta ráðgjöf og þjónustu við bændur.
Nýr bæklingur um framleiðslu og meðhöndlun nautakjöts
Íslenskt gæðanaut hefur látið vinna bækling um framleiðslu og meðhöndlun á íslensku nautakjöti og er hann nú aðgengilegur naut.is. Fyrirmynd bæklingsins er meðal annars sótt í bæklinginn „Frá fjalli að gæðamatvöru“ sem unninn var  á vegum MATÍS og Landssamtaka sauðfjárbænda.]]></description>
Kennslumyndband um plægingar - Stillingar á plóg
Linda Margrét Gunnarsdóttir ráðunautur hjá RML lauk í fyrra búfræðinámi. Lokaverkefni hennar fjallaði um plægingar og vann hún myndband sem hluta af verkefninu. Í myndbandinu er fjallað um stillingar á dráttarvél, plóg og fleiri mikilvægum þáttum sem koma við sögu ef plægingar eiga að takast vel]]></description>
Vegna umræðna um „Plast í íslenskum landbúnaði – leiðir og kostnaður við að draga úr notkun heyrúlluplasts“
Nýlega útgefin skýrsla RML um plast í íslenskum landbúnaði hefur vakið miklar og gagnlegar umræður.  Umræður um loftslags- og umhverfismál eru þörf, og þökkum við fyrir alla þá athygli sem þessi vinna hefur fengið.  Það hafa vaknað nokkrar spurningar hjá áhugasömum um þessi mál og val á forsendum í reiknilíkani sem kynnt er í skýrslunni.]]></description>
Norrænt samstarf í útrás
Ráðunautaþjónustur og ábyrgðaraðilar skýrsluhalds í nautgriparækt í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð hafa um árabil unnið í sameiningu að því að þróa tæknilausnir til að auðvelda gagnaflæði milli skýrsluhaldskerfa og mjaltabúnaðar.  RML sem ábyrgðaraðili skýrsluhalds og ræktunarstarfs hérlendis er þátttakandi í þessu samstarfi fyrir Íslands hönd.
Kerfið sem kallast NCDX (Nordic Cattle Data Exchange) er þróað af Mtech í Finnlandi og er komið í notkun, m.a í Finnlandi og Noregi, og unnið hefur verið að því að búa til tengingar við mjaltaþjóna á Íslandi.]]></description>
Fjósloftið: Hjarðstýring á mjaltaþjónabúum
Næsti fundur á Fjósloftinu verður miðvikudaginn 22. apríl kl. 13.00. Umræðuefnið að þessu sinni verður hjarðstýring á mjaltaþjónabúum og fyrirlesari er Jóna Þorunn Ragnarsdóttir. Allir velkomnir og að sjálfsögðu vonumst við til að hitta sem flesta á fjóslofti veraldarvefsins.]]></description>
Fjósloftið: Fjarfundir fyrir kúabændur
Í ljósi aðstæðna hefur RML ákveðið að prófa fjarfundi fyrir kúabændur og verður fyrsti fundurinn á morgun, miðvikudag 15. apríl kl. 13:00. Notað verður fjarfundakerfið Microsoft Teams og ganga fundirnir undir heitinu Fjósloftið en þar vísað til þess að á fjósloftinu fara oft fram skemmtilegar umræður auk þess sem segja má að fundirnir verði í loftinu. Um er að ræða stutta fundi þar sem haldin verður 10-15 mínútna framsaga og fylgt eftir með 10-15 mínútna umræðum. Þetta er tilraun og verður framhaldið til skoðunar með hliðsjón af hvernig tekst til.]]></description>
Spildudagur í Skagafirði 16. ágúst
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins heldur „Spildudag“ í Keldudal í Skagafirði föstudaginn 16. ágúst kl. 13:00-15:00.
Spildudagurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa á. Ekki þarf að greiða þátttökugjald en tilkynna þarf þátttöku gegnum slóðina hér að neðan. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 14. ágúst.Sagt verður frá áburðar- og loftunartilraun sem gerð er í Keldudal í sumar og hún skoðuð.
Fjallað verður um dreifingu á tilbúnum áburði, eiginleika hans, mat á dreifigæðum og þætti sem hafa áhrif á þau. Vangaveltur um áburðargildi kúamykju og hvernig skuli haga dreifingu hennar svo nýting hennar sé sem best.]]></description>
Nýtt fjós á Snorrastöðum
Á Snorrastöðum í Borgarbyggð hafa feðgarnir Kristján Ágúst Magnússon og Magnús Kristjánsson unnið að fjósbyggingu í vetur. Byggingin er 777 fermetra viðbygging við 559 fermetra nautaeldis- og fjárhús sem byggt var 2009. Samtals mun nýja fjósið á Snor...]]></description>
Fjárfestingastuðningur - umsóknarfrestur 
Nú líður að því að sækja þurfi um fjárfestingastuðning fyrir framkvæmdum á árinu 2019. Umsóknarfrestur fyrir umsóknir í sauðfjárrækt er 15. mars en í nautgriparækt er hann 31. mars (29. mars er föstudagur fyrir þá sem kjósa aðstoð RML). Smellið á fyrirsögn fyrir nánari upplýsingar.]]></description>
Nýjar reglugerðir um stuðning í landbúnaði
Fjórar nýjar reglugerðir um stuðning við nautgriparækt, sauðfjárrækt, garðyrkju og landbúnað voru gefnar út í Stjórnartíðundum í dag en þær taka gildi 1. janúar 2019. Þetta í samræmi við ákvæði búvörusamninga frá 2016 og eru reglugerðirnar endurskoðaðar árlega. Í frétt á vef atvinnuvegaráðuneytisins kemur fram að reglugerðirnar séu að mestu leyti samhljóða reglugerðum sem að giltu um sama efni árið 2018 og breytingar flestar smávægilegar.]]></description>
Sunnlenskir bændur athugið
Ert þú að hugleiða breytingar eða nýbyggingar á næstu misserum og vilt fá hlutlausa ráðgjöf?
Ráðunautur í bútækni og aðbúnaði verður á ferðinni á Suðurlandi dagana 5. og 6. nóv til skrafs og ráðagerða.
Ef áhugi er á að fá heimsókn er hægt að senda ...]]></description>
Bændaferð til Noregs 7.-11. nóvember
Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins og NLR (Norsk Landbruksrådgiving) sem er ráðunautaþjónusta í eigu norskra bænda, standa fyrir bændaferð til Noregs dagana 7.-11. nóvember næstkomandi. Farið verður í heimsóknir til bænda, hlustað á fyrirlestra frá NLR um norskan landbúnað og að lokum farið á landbúnaðarsýningu.]]></description>