Skráningar á miðsumarssýningar

Opnað var á skráningar á miðsumarssýningar miðvikudaginn 9. júní. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum heimasíðu RML en á forsíðunni er flýtihnappur sem skráð er í gegnum. Leiðbeiningar varðandi skráningar er að finna á heimasíðu RML.

Í meðfylgjandi töflu má sjá hvaða sýningarstaðir eru í boði og lokaskráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að skrá tímalega.

RML áskilur sér rétt til að fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við og sameina sýningar ef þess gerist þörf. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross. Gerð er undantekning á þessu fyrir sýninguna á Stekkhólma á Fljótsdalshéraði en þar verða að nást 15 skráningar svo sýning verði haldin. Hér að neðan má sjá sýningar vorsins og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur.

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðunni www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is.