Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í mjólkurframleiðslunni í október

Geisli frá Ásum í Gnúpverjahreppi
Geisli frá Ásum í Gnúpverjahreppi

Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni nú í október hafa verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til laust fyrir hádegið þann 13. nóvember, höfðu skýrslur borist frá 553 búum. Reiknuð meðalnyt 25.205,8 árskúa á þessum búum, var 6.159 kg á síðustu 12 mánuðum og hafði hækkað um 34 kg. frá fyrra mánuði. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 45,6. Rétt er að hafa í huga að ekki er um að ræða skil frá öllum búum sem eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu og taka mið af því þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar. Þar að auki eru þær niðurstöður sem sjást í töflunum á vef okkar frá búum sem skýrslum hefur verið skilað frá með sem jöfnustu millibili undanfarna mánuði og rétt að skoða þær einnig með tilliti til þess.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum var hið sama og við seinustu uppgjör, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr þar mjólkaði 8.952 kg. síðustu 12 mánuðina. Annað búið í röðinni nú var einnig hið sama og síðustu mánuði, bú Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal þar sem meðalkýrin skilaði 8.397 kg. á tímabilinu. Þriðja búið á listanum var, líkt og seinast, bú Gautsstaða ehf. á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd þar sem meðalárskýrin skilaði 8.222 kg. Fjórða búið var bú Ingimars Jónssonar á Flugumýri í Blönduhlíð en meðalárskýrin þar mjólkaði nú 8.142 kg. Fimmta búið á listanum við lok október var Hvanneyrarbúið ehf. en meðalnyt árskúnna þar var 8.114 kg. síðastliðna 12 mánuði.

Nythæsta kýrin við uppgjörið nú var sú sama og fyrir mánuði síðan, Lotta 564 (f. Lykill 02003) á Kúskerpi í Blönduhlíð, sem mjólkaði 13.681 kg. undanfarna 12 mánuði. Önnur í röðinni nú var Taska 1525 (f. Stilkur 1397 undan Aðli 02039) í Birkihlíð í Skagafirði en hún skilaði 13.107 kg. á tímabilinu. Þriðja kýrin á þessum lista nú var Aþena 624 (f. Aðall 02039) í Laxárholti 2 á Mýrum vestra, sem mjólkaði 12.960 kg. á síðustu 12 mánuðum.

Alls náðu 85 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir september hafði verið skilað frá undir hádegið þ. 13. nóvember, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 21 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og þar af náðu tvær að komast yfir 13.000 kg.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk