Niðurstöður sauðfjárskýrsluhaldsins árið 2017

Uppgjöri á skýrslum fjárræktarfélaganna fyrir árið 2017 er að mestu lokið en þetta er fyrr en verið hefur og munar þar helst um að skýrsluhald er forsenda allra greiðslna hjá þeim sem njóta stuðnings á grunni búvörusamninga. Þegar þetta er ritað í byrjun febrúar er þó enn eftir að ganga frá uppgjöri fyrir um 3500 ær sem hafa skráða burðarfærslu vorið 2017. Reiknaðar afurðir eru 0,6 kg minni á hverja kind en árið 2016. Munar þar eflaust mest um að gróður féll snemma og haustbeitin því ekki eins kraftmikil og árið á undan.

Nánar um uppgjörið 2017 í Bændablaðinu sem kemur út í dag.

Niðurstöður skýrsluhalds 2017

Frá 1996 hefur framleiðslugeta hverrar kindar aukist um 21,3%  

/eib