Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í ágúst 2017

Þróttur frá Ósi í Hvalfjarðarsveit
Þróttur frá Ósi í Hvalfjarðarsveit

Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni í nýliðnum ágúst hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til skömmu fyrir kl. 10 fyrir hádegi þann 11. september, höfðu skýrslur borist frá 535 búum. Reiknuð meðalnyt 24.176,2 árskúa á þessum búum, var 6.158 kg á síðustu 12 mánuðum og hafði aukist um 65 kg. frá fyrra mánuði. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 45,2. Rétt er að hafa í huga að ekki er um að ræða skil frá öllum búum sem eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu og taka mið af því þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar. Þar að auki eru þær niðurstöður sem sjást í töflunum á vef okkar frá búum sem skýrslum hefur verið skilað frá með jöfnu millibili undanfarna mánuði og rétt að skoða þær einnig með tilliti til þess.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum var hið sama og við seinustu uppgjör, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr þar skilaði 8.948 kg. af mjólk á tímabilinu. Annað búið í röðinni nú var hið sama og fyrir mánuði, bú Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal þar sem meðalnytin reiknaðist 8.345 kg. á síðustu 12 mánuðum. Þriðja búið á listanum var einnig hið sama og seinast, bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði þar sem meðalárskýrin skilaði 8.135 kg. mjólkur. Fjórða búið var bú Kúskerpis ehf. á Kúskerpi í Blönduhlíð þar sem meðalárskýrin mjólkaði að jafnaði 8.109 kg. á tímabilinu. Fimmta búið nú var Hvanneyrarbúið ehf. á Hvanneyri í Andakíl í Borgarfirði þar sem meðalnyt árskúnna reyndist 8.072 kg. á síðustu 12 mánuðum.

Nythæsta kýrin við uppgjörið nú var Snædís 610 (f. Gullstígur 518 undan Gylli 03007) í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit en nyt hennar síðustu 12 mánuði var 12.849 kg. Í öðru sæti var Skuld 1539 (f. Aðall 02039) á Hvanneyri í Andakíl, sem mjólkaði 12.686 kg. á tímabilinu. Þriðja í röðinni nú við lok ágúst var Ljóna 501 (f. Framherji 07022) í Smjördölum í Flóa en hún mjólkaði 12.420 kg. á tímabilinu.

Alls náðu 70 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir ágúst hafði verið skilað frá nokkru fyrir hádegi þ. 11. september, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Af þeim komust 9 yfir 12.000 kg. nyt á umræddu tímabili.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk