Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í júlí 2017

Grani 15-030 frá Syðri-Gróf
Grani 15-030 frá Syðri-Gróf

Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni í júlí síðastliðnum, hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til skömmu fyrir hádegið þann 11. ágúst, höfðu skýrslur borist frá 560 búum. Reiknuð meðalnyt 24.910,4 árskúa á þessum búum, var 6.093 kg á síðustu 12 mánuðum og hafði staðið um það bil í stað, reiknuð aukning var um 2 kg. frá fyrra mánuði. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 44,5. Rétt er að hafa í huga að ekki er um að ræða skil frá öllum búum sem eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu og taka mið af því þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar. Þar að auki eru þær niðurstöður sem sjást í töflunum á vef okkar, miðaðar við bú sem skýrslum hefur verið skilað frá með jöfnu millibili undanfarna mánuði og rétt að skoða þær einnig með tilliti til þess.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum var hið sama og við seinustu uppgjör, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr þar skilaði 8.992 kg. af mjólk á tímabilinu. Annað búið í röðinni nú var bú Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal þar sem meðalnytin reiknaðist 8.383 kg. á síðustu 12 mánuðum. Þriðja búið á listanum var bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði þar sem meðalárskýrin skilaði 8.203 kg. mjólkur. Fjórða búið var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalárskýrin mjólkaði að jafnaði 8.114 kg á tímabilinu. Fimmta búið nú var Hvanneyrarbúið ehf. á Hvanneyri í Andakíl í Borgarfirði þar sem meðalnyt árskúnna reyndist vera 8.066 kg. á síðustu 12 mánuðum. Búin sem hér eru talin eiga það sammerkt að skýrslum um nyt þar hefur verið skilað jafnt og þétt undanfarið ár.

Nythæsta kýrin við uppgjörið nú var Ljóna 501 (f. Framherji 07022) í Smjördölum í Flóa en hún mjólkaði 13.256 kg. á tímabilinu. Önnur í röðinni var Snædís 610 (f. Gullstígur 518 undan Gylli 03007) en nyt hennar síðustu 12 mánuði var 12.853 kg. Sú þriðja reyndist vera Rósamunda 564 (f. Spaði 10003) á Fossi í Hrunamannahreppi, en hún mjólkaði 12.720 kg. á umræddu tímabili.

Alls náðu 52 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir júlí hafði verið skilað frá skömmu fyrir hádegi þ. 11. ágúst, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Af þeim reyndust 12 hafa mjólkað yfir 12.000 kg. og ein þeirra komst yfir 13.000 kg. nyt á tímabilinu.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk