Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í september 2017

Feti frá Svertingsstöðum 2 í Eyjafjarðarsveit
Feti frá Svertingsstöðum 2 í Eyjafjarðarsveit

Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni í nýliðnum september hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til um hádegisbilið þann 11. október, höfðu skýrslur borist frá 553 búum. Reiknuð meðalnyt 24.887,8 árskúa á þessum búum, var 6.125 kg á síðustu 12 mánuðum og hafði lækkað um 33 kg. frá fyrra mánuði. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 45,0. Rétt er að hafa í huga að ekki er um að ræða skil frá öllum búum sem eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu og taka mið af því þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar. Þar að auki eru þær niðurstöður sem sjást í töflunum á vef okkar frá búum sem skýrslum hefur verið skilað frá með jöfnu millibili undanfarna mánuði og rétt að skoða þær einnig með tilliti til þess.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum var hið sama og við seinustu uppgjör, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr þar skilaði 8.938 kg. síðustu 12 mánuðina. Annað búið í röðinni nú var hið sama og fyrir mánuði, bú Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal þar sem meðalnytin var 8.380 kg. á tímabilinu. Þriðja búið á listanum var bú Gautsstaða ehf. á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd þar sem meðalárskýrin skilaði 8.154 kg. Fjórða búið var bú Kúskerpis ehf. á Kúskerpi í Blönduhlíð þar sem meðalárskýrin mjólkaði að jafnaði 8.146 kg. á tímabilinu. Fimmta búið nú var bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði þar sem meðalnyt árskúnna reyndist 8.109 kg. á síðustu 12 mánuðum.

Nythæsta kýrin við uppgjörið nú var Lotta 564 (f. Lykill 02003) á Kúskerpi, sem mjólkaði 12.720 kg. undanfarna 12 mánuði. Önnur í röðinni að þessu sinni var Skuld 1539 (f. Aðall 02039) á Hvanneyri í Andakíl, sem mjólkaði 12.716 kg. á tímabilinu. Þriðja í röðinni nú var Taska 1525 (f. Stilkur 1397 undan Aðli 02039) í Birkihlíð í Skagafirði en hún mjólkaði 12.431 kg. síðustu 12 mánuðina.

Alls náðu 84 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir september hafði verið skilað frá um hádegið þ. 11. október, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 13 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk