Opnað fyrir skráningar á miðsumarssýningar

Þá er kynbótasýningum vorsins lokið. Sýnd voru 716 hross á átta sýningum og fengum við að sjá heimsmet falla. Í gær þann 19. júní var opnað á skráningar á miðsumarssýningar. Sýningarnar verða tvær að þessu sinni, ef næg þátttaka næst, á Hólum í Hjaltadal og á Gaddstaðaflötum og fara fram dagana 24.-28. júlí. Síðasti skráningar- og greiðsludagur er á miðnætti föstudagurinn 14. júlí. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hér í gegnum heimasíðuna en á forsíðunni er tengill sem vísar í "skrá á kynbótasýningu“. Leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu má einnig finna hér á heimasíðunni undir kynbótastarf/hrossarækt/kynbótasýningar. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn.

Verð fyrir fullnaðardóm er 24.500 kr en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 19.000 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð Rétt er að árétta að einungis er hægt að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er lengur hægt að greiða með millifærslu. Ef korti er hafnað færist skráningin í „eldri pöntun“ en hrossið skráist ekki inn á sýninguna. Endilega takið samt niður pöntunarnúmerið því færslan er geymd í „eldri pöntun“ (tryggir samt ekki pláss á sýningu). Þannig þegar skráning er endurtekin nægir að fara í „eldri pöntun“ og skrá inn pöntunarnúmerið og þá opnast greiðsluglugginn og einungis þarf að skrá inn upplýsingar um greiðslukort. Þegar greiðsla hefur tekist þá á að koma kvittun í tölvupósti, ef kvittunin kemur ekki hefur skráning trúlega ekki tekist. Þeir sem hafa aðgang að WF geta með því að fara inn í „sýningar“ séð hvort hrossið er komið inn á sýninguna. Ef hrossið birtist þar hefur allt gengið upp og hrossinu verður úthlutað tíma.

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast hér á heimasíðunni þegar þær eru frágengnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreitt er 14.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 11.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 15. ágúst. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:

  • Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
  • Allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra.
  • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
  • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt
  • Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann, þar sem örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna hér á heimasíðunni eða með því að hringja í okkur í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is

sem/okg