Röðun hrossa á kynbótasýningu á Selfossi 22.-24. ágúst

Kynbótasýning verður á Selfossi dagana 22. til 25. ágúst. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 þriðjudaginn 22. ágúst. Yfirlitssýning verður föstudaginn 25. ágúst og hefst hún kl. 9:00. Alls eru 102 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" hér ofar á síðunni eða í gegnum tengil hér að neðan.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Sjá nánar:

Röð hrossa 
Röð eftir knöpum 

hes/okg