Síðsumarssýning kynbótahrossa Borgarnesi - hollaröð

Síðsumarssýning í Borgarnesi

Síðsumarssýning í Borgarnesi fer fram miðvikudaginn 23.ágúst næstkomandi, alls eru skráð 32 hross í dóm. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 á miðvikudaginn. Yfirlit verður kl. 9:00 á fimmtudaginn 24.ágúst. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn "Röðun hrossa á kynbótasýningum" hér ofar á síðunni eða í gegnum tengil hér að neðan.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

sem/agg

Hollaröð á Borgarnesi