Lambaþoni lokið

Um helgina fór fram Lambaþon sem er 24 klst keppni um bestu hugmyndina til að auka verðmætasköpun í virðiskeðju sauðfjár.

Keppnin var hnífjöfn en alls 6 lið tóku þátt. "Kynnum kindina" var sú hugmynd sem bar sigur af hólmi en hún gengur út á að kynna kindur sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn og að gefa ferðamönnum kost á að upplifa með auðveldum hætti ýmis störf í sveitum landsins sem tengjast sauðfé. 

Það voru Arnþór Ævarsson, Magnea Jónasdóttir og Kári Gunnarsson sem skipuðu sigurliðið og hlutu þau 200 þúsund krónur í verðlaun. 

Í dómnefndinni voru Guðjón Þorkelsson, (formaður dómnefndar), Arnar Bjarnason, Bryndís Geirsdóttir, Gunnfríður Hreiðarsdóttir og Ragnheiður Héðinsdóttir.

Sigurliðið hefur jafnframt komið hugmyndavinnunni skrefi lengra þar sem enskt vinnuheiti „Sheepadvisor“ var nefnt sem möguleg leið til að komast nær erlendum gestum lands og þjóðar með þær upplýsingar sem kynna þarf fyrir erlendum ferðamönnum, hvor svo sem þær snúast um þar hvar má bragða á réttum sem unnir eru úr sauðfjárafurðum, hvar vörur úr íslenskri ull eru seldar, hvaða viðburðir eru á döfinni sem viðkoma sauðfjárrækt eða hvað annað sem þurfa þykir.

Mikil hugmyndaauðgi einkenndi keppendur og voru margar hugmyndir um áframhaldandi þróun og samstarf á lofti við lok keppninnar.

Að atburðinum stóðu Matís, Landbúnaðarháskóli Íslands, Háskólinn á Bifröst, Landgræðslan, Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins, Matvælastofnun, Landssamtök sauðfjárbænda, Samtök ungra bænda, Háskóli Íslands og Icelandic Lamb.

klk/okg