Jafnlaunavottun

RMl hefur hlotið vottun á jafnlaunakerfi sínu samkvæmt jafnlaunastaðli ÍST 85:2012 og uppfyllt öll skilyrði staðalsins. Það var BSI á Íslandi, sem er faggiltur vottunaraðili, sem tók út jafnlaunakerfi fyrirtækisins.

Jafnréttisstofa hefur veitt RML heimild til að nota jafnlaunamerkið en í því felst staðfesting á að RML hafi fengið vottun á jafnlaunakerfi sínu

Jafnlaunastefna RML tilgreinir stefnu fyrirtækisins í launamálum.

Framkvæmdastjóri RML ber ábyrgð á því að stefnunni sé framfylgt.

Jafnlaunastefnu RML má lesa hér.