Skráning vorbóka í sauðfjárrækt og uppfærsla kynbótamats

Við stofnun Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins ehf. (RML) um síðustu áramót varð sú breyting að skráning á öllum skýrsluhaldsgögnum fluttist frá Bændasamtökunum til RML.  Í kjölfar þessa hefur verið ákveðið að gera nokkrar breytingar á vinnuferlum varðandi skráningar fjárbóka og vinnslu kynbótamats.

Markmið þessara breytinga er að bændur eigi möguleika á að fá kynbótamat gripa uppfært samkvæmt nýjustu gögnum hratt og örugglega svo það nýtist sem best í ræktunarstarfinu og búrekstrinum.  Nú í kjölfar skila á vorbókum er um að ræða uppfærslu á kynbótamati fyrir frjósemi, á grundvelli burðarupplýsinga nýliðins vors, í tæka tíð fyrir líflambaval haustsins. Einnig verða nokkrar breytingar á gjaldskrá vegna skráninga á fjárbókum þar sem gjaldskrá RML miðar við að gjaldtaka vegna útseldrar þjónustu sé samkvæmt tímagjaldi og verður þá innheimt fyrir þann vinnutíma sem fer í að skrá hverja bók fyrir sig í stað fastagjalds. Vekjum við athygli á því að þetta getur þýtt breytingar á verði á skráningu bóka frá því sem áður var og hvetjum við bændur til að kynna sér það.

Gjaldskrá RML er aðgengileg hér á heimasíðunni og hægt er að fá nánari upplýsingar um þessar breytingar með því að hringja í 516-5000.

Meginbreytingin er fyrir þá skýrsluhaldara sem enn skila bók inn til skráningar. Þeir geta nú skilað bókum inn á næstu starfsstöð RML þaðan sem henni verður miðlað áfram til skráningar innan fyrirtækisins. Allir þeir sem skiluðu haustbók til skráningar síðasta haust fengu sendar leiðbeiningar með um útfyllingu þeirra og eru þessar leiðbeiningar einnig aðgengilegar hér á heimasíðunni. Vandlega útfyllt vorbók flýtir mjög fyrir allri skráningarvinnu og eru menn hvattir til að fylgja þessum leiðbeiningum við útfyllingu bóka núna í vor.

Til að hvetja til tímanlegra skila og til að dreifa álagi í skráningu verður veittur 25% afsláttur af skráningu vorbóka sem komnar eru inn til RML fyrir 30. júní nk. Jafnframt verður tryggt að búið verði að skrá þær bækur inn þegar kynbótamat fyrir frjósemi, miðað við gögn frá vorinu 2013, verður uppfært í ágúst. Það er því tryggt að þeir sem skila bókum snemma fá haustbækur með uppfærðu kynbótamati sem byggir á nýjustu vorgögnum.  Næsta keyrsla kynbótamats fyrir frjósemi verður síðan ekki fyrr en í lok nóvember, um leið og kynbótamat fyrir aðra eiginleika verður keyrt.  Í meðfylgjandi töflu má sjá helstu dagsetningar varðandi skil fjárbóka. Vert er að árétta að þessar dagsetningar eru eingöngu viðmið vegna úrvinnslu kynbótamats og prentunar haustbóka en hafa ekkert með þátttöku í gæðastýringu að gera.

Nærri 80% sauðfjárbænda skila sínum upplýsingum inn rafrænt, hjá þeim verður engin breyting á skráningum gagna önnur en sú að þeir eru hvattir til að skila gögnum inn tímanlega svo uppfært kynbótamat fyrir frjósemi komi í haustbók. Viðmiðunardagsetning fyrir skýrsluhaldara í vefskilum í gegnum fjarvis.is er 1. ágúst. Hafi menn skilað fyrir þann tíma er tryggt að haustbók innihaldi kynbótamat sem byggir á nýjustu vorgögnum.  Miðað verður við að engin haustbók verði send út fyrr en búið er að uppfæra kynbótamatið um miðjan ágúst. Ef einhver þarf á haustbók að halda fyrir þann tíma er hægt að óska eftir því sérstaklega en hún verður þá ekki með uppfærðu kynbótamati fyrir frjósemi.

Allar nánari upplýsingar um skráningar fjárbóka hjá RML veitir Eyjólfur Ingvi Bjarnason, ráðunautur í sauðfjárrækt. Netfang hans er eyjolfur(hjá)rml.is, sími 516-5013 og 862-0384.

Bækur sem skilað er inn til skráningar
Skil fyrir 30. júní 25% afsláttur á skráningu og tryggt að vorgögn komist inn í kynbótamatsútreikninga
Skil fyrir 1. ágúst Tryggt að haustbækur verði sendar út fyrir 1. september
Vefskil í gegnum fjarvis.is
Skil fyrir 1. ágúst Tryggt að vorgögn komist inn í kynbótamat
Skil fyrir 20. ágúst Tryggt að haustbók verði send út fyrir 1. september

 

Við minnum á að með því að kaupa aðgang að fjarvis.is geta skýrsluhaldarar sjálfir skráð inn öll sín skýrsluhaldsgögn og fá jafnframt aðgang að öllum uppgjörum og skýrslum búsins. Hægt er að fá allar upplýsingar um aðgang og notkun á fjarvis.is með því að hafa samband við RML.

Sjá nánar:

Gjaldskrá RML

Leiðbeiningar um færslu vorbókar

eib/okg