Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar fyrir marsmánuð

Markaður frá Búðarhóli í Landeyjum, undan Kvóta 19042 og Huldu 1186.
Markaður frá Búðarhóli í Landeyjum, undan Kvóta 19042 og Huldu 1186.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir síðustu 12 mánuðina, nú við lok mars þegar sólin hefur hækkað verulega á lofti, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað um hádegisbil þann 11. apríl.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 450 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 119 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.407,0 árskúa á búunum 450 var 6.470 kg. eða 6.522 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á því 12 uppgjörstímabilinu. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 54,2.

Mest meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var á búi Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, 8.849 kg. Annað á listanum var bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem hver árskýr mjólkaði að meðaltali 8.619 kg. á tímanum sem um ræðir. Þriðja að þessu sinni var bú Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal þar sem meðalnyt árskúnna reiknaðist 8.539 kg. síðustu 12 mánuði. Fjórða að þessu sinni var bú Björgvins Rúnars Gunnarssonar á Núpi á Berufjarðarströnd þar sem meðalnyt árskúa reyndist 8.439 kg. Í fimmta sæti var bú Dalbæjar 1 ehf. í Dalbæ í Hrunamannahreppi, þar sem meðalafurðir reiknaðra árskúa var 8.343 kg. á fyrrnefndu tímabili.

Nythæst á síðustu 12 mánuðum var kýr nr. 988 (f. Strákur 10011) á Núpi á Berufjarðarströnd sem mjólkaði 14.082 kg. Önnur að þessu sinni var Amanda 865 (f. Flekkur 08029) á Höskuldsstöðum í Skagabyggð en nyt hennar var 13.681 kg. á síðustu 12 mánuðum. Þriðja í röðinni var kýr nr. 777 (f. Brjánn 14002) á Núpi á Berufjarðarströnd en hún mjólkaði 13.411 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fjórða kýrin var Lisa 904 (f. Skalli 11023) í Árbæ á Mýrum við Hornafjörð en nyt hennar var 13.298 kg. á tímabilinu sem um ræðir. Fimmta í röðinni var Skritla 963 (f. Sólon 10069) í Nesi í Höfðahverfi en hún mjólkaði 13.264 kg. á tímabilinu.

Alls náðu 148 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir mars hafði verið skilað frá undir hádegi þann 11. apríl að mjólka 11.000 kg. eða meira síðustu 12 mánuði. Af þeim hópi mjólkaði 51 kýr yfir 12.000 kg. og níu þeirra skiluðu yfir 13.000 kg. nyt á umræddu tímabili.

Meðalfjöldi kúa á þeim 119 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 27,2 nú við lok mars en árskýrnar á þeim búum voru að meðaltali 26,1. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum reyndist 6.842,6 kg. á undanförnum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.419 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búunum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 257,5 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 743,0 dagar.

Athugið að skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt, er ekki uppfært í hverjum mánuði eins og bent hefur verið á áður.

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2023