Röðun hrossa á kynbótasýningu á Mið-Fossum dagana 1.-2. júní

Kynbótasýning verður á Mið-Fossum í Borgarfirði dagana 1.-2. júní 2016. Dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 miðvikudaginn, 1. júní. Yfirlitssýning verður fimmtudaginn 2. júní frá kl. 9:00 til 12:00.

Alls eru 35 hross skráð á sýninguna í fyrri vikunni. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn „Röðun hrossa á kynbótasýningum“ hér hægra megin á forsíðunni eða hlekkinn hér að neðan.

Við biðjum eigendur og sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Röð hrossa (fyrri vika) 

Röð eftir knöpum (fyrri vika) 

lr/okg