Röðun hrossa á síðsumarssýningu á Mið-Fossum 15.-17.ágúst

Kynbótasýning fer fram á Mið-Fossum í Borgarfirði dagana 15. til 18. ágúst. Dómar hefjast kl. 13:00 á mánudaginn 15.ágúst og viljum við biðja sýnendur um að mæta tímanlega í sín holl, svo að tímasetningar haldist sem best.

Stíupláss á Mið-Fossum þarf að panta í síma 843-5348 í síðasta lagi á föstudaginn, 12.ágúst.

Yfirlitssýning verður á fimmtudaginn 18.ágúst og verður auglýst frekar þegar nær dregur. Alls eru 75 hross skráð á sýninguna. Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á hnappinn „Röðun hrossa á kynbótasýningum“ hér hægra megin á forsíðunni. 

Hollaröðun

Röð eftir knöpum

lr/agg