Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktinnar í júlí 2013

Dúlla 203, móðir Dúllara 07024.
Dúlla 203, móðir Dúllara 07024.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar við lok júlí hafa verið reiknaðar og birtar hér á vef okkar. Við uppgjörið hafi verið skilað skýrslum frá 93% af þeim 582 búum sem eru skráð í skýrsluhaldið. Reiknuð meðalnyt 21.098,6 árskúa var 5.649 kg sem er 1 kg lækkun frá síðasta uppgjöri. Meðalfjöldi árskúa á búum þeim sem skýrslum hafði verið skilað frá var 39,0.

Hæsta meðalnytin á tímabilinu var á búi Eggerts Pálssonar á Kirkjulæk í Fljótshlíð, 7.800 kg eftir árskú og er það sama búið og mest meðalnyt var á við síðasta uppgjör. Næsta bú í röðinni var bú Helga Bjarna Steinssonar á Syðri-Bægisá í Öxnadal en þar var meðalnytin 7.643 kg á árskúna. Þriðja búið á listanum var bú Arnfríðar og Jóns Viðars í Dalbæ I í Hrunamannahreppi en þar reiknaðist meðalnytin 7.555 kg á árskú. Fjórða búið var bú Guðmundar og Svanborgar í Miðdal í Kjós en þar reiknaðist nytin 7.503 kg á árskú og fimmta búið var bú Jóns og Hrefnu á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði en þar var nyt meðalkýrinnar 7.494 kg. Bú nr. 2-5 á listanum eru hin sömu og við seinasta uppgjör, röðin innbyrðis hefur hins vegar breyst. Á 23 búum var reiknuð meðalnyt á síðustu 12 mánuðum hærri en 7.000 kg eftir árskú.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var Urður 1229 á Hvanneyri í Andakíl í Borgarfirði (f. Laski 00010) og mjólkaði hún 12.024 kg sl. 12 mánuði. Hún var einnig fyrst í röðinni við seinasta uppgjör. Önnur í röðinni núna var kýrin Bóla 527 í Nesi í Grýtubakkahreppi (f. Hræsingur 98046) en nyt hennar sl. 12 mánuði var 11.534 kg. Þriðja nythæsta kýrin var Setta 508 á Brúsastöðum í Vatnsdal (f. Þrasi 98052). Setta mjólkaði 11.222 kg á síðustu 12 mán. Fjórða var svo Skutla nr. 1069 í Skáldabúðum í Gnúpverjahreppi (f. Stíll 04041) og mjólkaði hún 11.055 kg á síðustu 12 mánuðum. Alls náðu 4 kýr að mjólka yfir 11.000 kg á umræddu tímabili, tveimur færri en við seinasta uppgjör. Af þessum 4 komst ein yfir 12.000 kg á tímabilinu.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhaldsins í nautgriparæktinni

/gj