Röðun kynbótahrossa á Fjórðungsmóti Austurlands dagana 2. - 4. júlí 2015

Sýning kynbótahrossa á Fjórðungsmóti Austurlands á Iðavöllum fer fram dagana 2. - 4. júlí 2015.

Dómar hefjast kl. 08:30 fimmtudaginn 2. júlí. Yfirlitssýning verður laugardaginn 4. júlí og hefst kl 13:45. Alls eru 33 hross skráð til dóms.
Búið er að birta hollaröðun hér á vefnum og má nálgast hana með því að smella á "Röðun hrossa á kynbótasýningum" undir Búfjárrækt/Hrossarækt.
Við biðjum sýnendur að mæta tímanlega með hrossin til dóms þannig að dómstörf gangi sem greiðast fyrir sig og tímasetningar haldist sem best.

Hollaröð á sýningunni á Iðavöllum. 

Hollaröð - knapar á sýningunni á Iðavöllum.

 

/sah/sk