Fréttir

Ársfundur RML verður haldinn á Hótel Stracta á Hellu, föstudaginn 30. október

Ársfundur RML verður haldinn á Hótel Stracta á Hellu, föstudaginn 30. október. Fundurinn hefst kl. 13:30 en boðið verður upp á súpu klukkan 13:00. Hér neðar í fréttinni má finna tengil fyrir beint streymi af fundinum.
Lesa meira

Hrossaræktin 2026 – Ráðstefna

Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt fer fram í reiðhöll Spretts, laugardaginn 7. nóvember og byrjar klukkan 13:00. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.
Lesa meira

Niðurstöður lambdóma og sláturupplýsingar – 1. nóvember síðasti skráningardagur

Í undirbúningi er ný hrútaskrá. Til að fá sem besta mynd af stöðu allra hrúta er mikilvægt að nýta tiltæk gögn úr lambadómum og kjötmati. Í skránni verða birt að vanda meðaltöl dóma hjá afkvæmum allra stöðvahrúta og fylgir hrútunum spánýtt kynbótamat. Það er því mikill akkur í því að allir fyrirliggjandi dómar og sláturgögn séu færð inn og staðfest inn í Fjárvís. Jafnframt hafa bændur beinan hag af því að fá sem sannast mat á heimahrútana nú þegar sláturtíð er að enda og lambdómum lokið.
Lesa meira

Huppa 100 ára

Þriðjudaginn 3. nóvember n.k. hefði ættmóðir íslenska kúastofnsins, Huppa frá Kluftum, orðið 100 ára ef hún hefði lifað. Í tilefni af þessum tímamótum standa Búnaðarsamband Suðurlands, Hrunamannahreppur og Nautgriparæktarfélag Hrunamanna fyrir málþingi og afmælisfagnaði í félagsheimilinu á Flúðum. Málþingið hefst kl. 11.00 og áætlað er að það standi til kl. 15.20 en þá tekur við veglegt kaffisamsæti til heiðurs afmælisbarninu. Í hádeginu mun Auðhumla svf. bjóða upp á veitingar sem saman standa af mjólkurafurðum afkomenda Huppu en líklega er hægt að rekja ættir nánast allra nautgripa á landinu til þessa merkisgrips.
Lesa meira

Kvóti 19042 er besta nautið fætt 2019

Viðurkenning Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands, fyrir besta nautið í árgangi 2019, var veitt á fagfundi nautgriparæktarinnar fimmtudaginn 22. október s.l. Besta nautið í árgangi 2019 var valið Kvóti 19042 frá Ytri-Tjörnum í Eyjafirði. Ræktendur Kvóta 19042 eru þau Elín Nolsöe Grethardsdóttir og Baldur Helgi Benjamínsson og tóku þau við viðurkenningunni úr höndum Sveinbjörns Eyjólfssonar forstöðumanns Nautastöðvarinnar. Kvóti 19042 var fæddur 8. október 2019, undan Sjarma 12090 og Angelu 1055 Úlladóttur 10089.
Lesa meira

Þrettán bú tilnefnd sem ræktunarbú ársins 2026

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 70 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Í reglum er tekið fram að tilnefna skal 12 efstu búin árlega en búin eru 13 í ár þar sem tvö bú eru jöfn í tólfta sæti.
Lesa meira

Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar september nýliðnum

Hæstu skráðu 12 mánaða nyt það sem af er þessu ári, 2026, á Kaka 982 í Gunnbjarnarholti 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, en nyt hennar á 12 mánaða tímabili, við lok september, var 17.869 kg. sem er nærri 1.000 kg. hærra en nyt hennar á 12 mánuðum reiknaðist fyrir mánuði síðan.
Lesa meira

Fagfundur nautgriparæktarinnar 2026

Fagfundur nautgriparæktarinnar 2026 verður haldinn fimmtudaginn 22. október  n.k. í Ásgarði á Hvanneyri og hefst kl. 13:00. Fundurinn er haldinn á vegum Fagráðs í nautgriparækt, í samstarfi við Bændasamtök Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands, Nautastöð BÍ og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, og er öllum opinn. Honum er einnig streymt á netinu, sjá hlekk hér fyrir neðan dagskrá.
Lesa meira

Loftslagsvænn landbúnaður – Vinnustofa um sjálfbæran landbúnað, haldin í Svartárkoti í Bárðardal

Loftslagsvænn landbúnaður býður bændum og öðrum áhugasömum um landbúnað til vinnustofu í Svartárkoti í Bárðardal þriðjudaginn 13. október. Þar verður fjallað um sjálfbærni í landbúnaði, helstu tækifæri og áskoranir og hvernig laga má búrekstur að aðstæðum hvers bús með sjálfbærri nýtingu staðbundinna náttúruauðlinda. Vinnustofan hefst kl. 11:00 og stendur til kl. 15:00. Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar í byrjun og lok fundar.
Lesa meira

Kynbótamat hrossa haustið 2026

Nú hefur nýtt kynbótamat verið vistað í WorldFeng en öllum kynbótasýningum lauk í fyrstu viku september. Vorið 2025 var ákveðið að byggja kynbótamatið bæði á kynbótadómum hrossa og einnig á keppnisárangri í ákveðnum keppnisgreinum. Hér er um að ræða töltgreinar (T1, T3, T2 og T4), fjórgangsgreinar (V1, V2 og B-flokki), fimmgangsgreinar (F1, F2 og A-flokki) og skeiðgreinar (250 metra skeiði, 100 metra skeiði og gæðingaskeiði).
Lesa meira