Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar síðustu 12 mánuðina, þegar apríl er á enda, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað um hádegisbilið þann 13. maí.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 447 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði að þessu sinni til 115 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.287,1 árskýr á búunum 447 var 6.494 kg. eða 6.515 kg. OLM
Nú eru vorsýningar fram undan og Landsmót í Reykjavík. Vorið er ávallt tilhlökkunarefni og mikil þátttaka er í þeim kynbótasýningum sem framundan eru sem er afar ánægjulegt. Hrossarækt og kynbótasýningar eru í eðli sínu samstarfsverkefni á milli ræktenda, sýnenda og starfsfólks kynbótasýninga þar sem ætlunin er að lýsa hverjum grip af kostgæfni og skapa verðmætar upplýsingar fyrir ræktunarstarfið. Ég ætla í nokkrum pistlum hér á síðunni að fara í gegnum atriði sem gott er að hafa í huga áður en sýningarnar byrja. Þessi verður um framkvæmd reiðdómsins.
Matvælaráðherra hefur nú lagt fram drög að Landsáætlun um útrýmingu riðuveiki. Hér er í raun um að ræða stefnuskjal sem undirritað verður af fulltrúum MAR, MAST og BÍ. Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir hefur farið fyrir starfshópi sem unnið hefur þessi drög. Auk hennar voru í hópnum Sigurbjörg Bergsdóttir og Auður Arnþórsdóttir sérgreinadýralæknar hjá MAST og þeir Trausti Hjálmarsson formaður BÍ og Eyþór Einarsson ráðunautur hjá RML.
Ómmælingar á holdagripum eru komnar til Íslands. Í Bandaríkjunum og fjölda landa í Evrópu, þar á meðal Noregi, nota bændur sömu aðferð við ræktun holdagripa. Rannsóknir sýna að tiltölulega hátt arfgengi er á þykkt hryggvöðva og -fitu (
Þó ekki sé algengt að lömb fæðist vansköpuð þá gerist það af og til. Stundum er um að ræða tilfallandi vansköpun en einnig getur verið um erfðagalla að ræða. Minnt er á að æskilegt er að fá upplýsingar um öll vansköpuð lömb sem fæðast undan sæðingahrútunum, ef hugsast gæti að um erfðagalla sé að ræða. Sérstaklega er mikilvægt að fá upplýsingar um öll lömb sem sýna einkenni bógkreppu, hvort sem þau eru undan sæðingastöðvahrútum eða heimahrútum.
Opnað verður á skráningar á kynbótasýningar mánudaginn 6. maí kl. 09:00. Skráning og greiðsla fer fram eins og síðustu ár í gegnum heimasíðu RML en á forsíðunni er flýtihnappur sem skráð er í gegnum. Á forsíðu WorldFengs er einnig hægt að skrá hross til sýningar. Nánari leiðbeiningar varðandi skráningar er að finna á heimasíðu RML. Í meðfylgjandi töflu má sjá hvaða sýningarstaðir eru í boði og lokaskráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn.
Út er komin skýrsla hjá RML um rekstur og afkomuþróun kúabúa fyrir árin 2020-2022. Sú skýrsla er unnin út frá rekstrargögnum 174-176 kúabúa af landinu öllu sem endurspeglar um 41-45% af heildarmjólkurinnleggi landsins, vaxandi eftir árum. Það hlutfall ásamt samanburði við gögn frá fyrri árum bendir til að gögnin gefi góða mynd af stöðu og þróun í greininni.
RML leitar eftir þátttakendum í málstofu þar sem fjallað verður um samspil landbúnaðar, umhverfismála og sjálfbærrar nýtingar náttúrauðlinda. Málstofan verður haldin í Ásgarði, aðalbyggingu Lbhí, í Ársal 3. hæð, á Hvanneyri þann 2. maí. Málstofan er liður í verkefni sem RML hefur umsjón með sem unnið er í samvinnu Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga. Verkefnið gengur undir nafninu „Samvinna í landbúnaði“ eða „Landsbrugssamarbedje“ og hefur hlotið styrk Norræna Atlantssamstarfinu – NORA. Markmið og megintilgangur þessa verkefnis er að skapa vettvang þar sem þessar þjóðir geta miðlað þekkingu og reynslu sín á milli í landbúnaðar- og umhverfismálum tengdum landbúnaði.
Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir síðustu 12 mánuðina, nú við lok mars þegar sólin hefur hækkað verulega á lofti, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað um hádegisbil þann 11. apríl.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 450 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 119 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.407,0 árskúa á búunum 450 var 6.470 kg. eða 6.522 kg. OLM
Fagfundur nautgriparæktarinnar verður fimmtudaginn 11. apríl 2024 á Hvanneyri og hefst kl. 13.00. Allir velkomnir!
Fundinum verður einnig streymt.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá dagskrána og hlekk á streymið.
Miðvikudaginn 10. apríl verður opið hús á starfsstöðinni okkar á Kirkjubæjarklaustri, að Klausturvegi 4, milli kl. 14:30 -16:00.
Stjórnendur RML verða á staðnum og við bjóðum bændum, viðskiptavinum okkar og samstarfsaðilum að koma við í kaffi og spjall um verkefni RML.
Kaffiveitingar í boði.
Hlökkum til að sjá ykkur, öll velkomin !