Mörkuð hefur verið sameiginleg stefna bænda og stjórnvalda í landsáætlun um útrýmingu sauðfjárriðu. Lykillinn að markmiðinu um riðulaust Ísland er að allir sauðfárbændur landsins taki virkan þátt. Ráðgjöfin í Gimsteini miðar að því að setja upp áætlun fyrir sauðfjárbú um innleiðingu verndandi og mögulega verndandi arfgerða. Ráðgjöfin verður sniðin að þörfum bóndans og verður í boði frá 15. október 2024.
Innifalið í Gimsteini er:
- Undirbúningur ráðgjafa þar sem farið er yfir stöðu búsins í Fjárvís með tilliti til fjölda fjár, samsetningu hjarðarinnar og hvort arfgerðir gripa séu þekktar (1 klukkustund).
- Fundur bónda og ráðgjafa. Í samráði við bóndann er ákveðið hvort fundurinn fari fram á netinu eða á starfsstöð RML. Miðað er við klukkustundar fund þar sem eftirfarandi hlutir eru ræddir:
- Almenn fræðsla um kynbætur. Farið í nokkur grunnatriði s.s. erfðir, skyldleikarækt, erfðafjölbreytileika, markmið landsáætlunar um útrýmingu riðuveiki og flokkun arfgerða með tilliti til næmi fyrir riðusmiti.
- Markmið búsins með tilliti til staðsetningar á landinu og flokkunar í landsáætlun.
- Sviðsmyndir skoðaðar fyrir viðkomandi bú þar sem horft er til mismunandi hraða innleiðingar, þörf fyrir arfgerðagreiningar og fleira.
Kynningarverð: 22.000 kr + vsk.
Sjá nánar:
Panta Gimstein
Landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu