Sækja um aðgang að forritum

RML sér um rekstur, þróun og notendaþjónustu á tölvukerfum í eigu Bændasamtaka Íslands.

Forritin eru þessi:

  • Huppa, skýrsluhaldskerfi fyrir nautgriparækt.
  • Fjárvís, skýrsluhaldskerfi fyrir sauðfjárrækt.
  • Heiðrún, skýrsluhaldskerfi fyrir geitfjárrækt.
  • Jörð, skýrsluhaldskerfi fyrir jarðrækt.
  • WorldFengur, upprunaættbók íslenska hestsins. 

Mögulegt er að sækja um aðgang að kerfum í gegnum Bændatorgið eða með því að hafa samband við RML í síma 516 5000 eða með tölvupósti á netfangið tolvudeild(hjá)rml.is.