Halldórsskjöldurinn - sauðfjárræktarbú ársins

Fagráð í sauðfjárrækt útnefnir árlega sauðfjárræktarbú ársins og veitir því farandgrip sem ber nafnið Halldórsskjöldinn. Skjöldurinn er gefinn til minningar um dr. Halldór Pálsson fyrrum búnaðarmálastjóra. Gripurinn er listaverk úr smiðju Siggu á Grund. Valið á búinu byggir á reglum, samþykktum af fagráði í sauðfjárrækt, sem kallast „besta fjárræktarbúið“.
Skjöldurinn var fyrst veittur á fagfundi sauðfjárræktarinnar árið 2022

2026: Baldursheimur 2, Mývatnssveit
2025: Efri-Fitjar, Fitjárdal
2024: Gýgjarhólskot, Biskupstungum
2023: Brúnastaðir, Flóa
2022: Þóroddsstaðir, Hrútafirði