Skilafrestur haustskýrslu

Skilafrestur á haustskýrslu í Bústofni (www.bustofn.is) er til 20. nóvember n.k. Í samræmi við lög um búfjárhald nr. 38/2013 skulu umráðamenn búfjár árlega skila inn haustskýrslu um búfjáreign, fóður og landstærðir.

Líkt og áður birtast upplýsingar úr hjarðbókum búfjáreigenda. Unnið er að því að tengja saman upplýsingar í WorldFeng og Bústofn svo hægt verði að klára haustskýrsluskil í WorldFeng. Mun sú nýbreytni verða auglýst þegar opnað verður fyrir þennan möguleika.

Allir búfjáreigendur geta með auðveldum hætti gengið frá haustskýrslu í Bústofni. Aðgangur að Bústofni fæst með rafrænum skilríkjum eða kennitölu og Íslykli.

Þeir sem ekki hafa tök á því að skila sjálfir í Bústofn stendur til boða þjónusta Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins við útfyllingu og skil haustskýrslu.