Átaksverkefni í sauðfjárrækt

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins fékk nýverið styrk af fagfé sauðfjárræktar vegna átaksverkefnis í sauðfjárrækt. Vinnuheitið verkefnisins er „Auknar afurðir sauðfjár - tækifæri til betri reksturs“. Ástæða þess að ráðist er í þetta verkefni er ekki síst mikil lækkun afurðaverðs hjá sauðfjárbændum nú í haust. Markmið verkefnisins er að safna gögnum um rekstur sauðfjárbúa og greina sóknarfæri í rekstri hjá hverju þátttökubú með það að markmiði að bæta búreksturinn.

Undanfarin ár hefur RML boðið uppá verkefni sem heitir „Auknar afurðir sauðfjár“. Í því verkefni hafa skýrsluhaldsgögn búsins verið skoðuð og borin saman á ýmsan hátt ásamt því að ráðunautur hefur komið í heimsókn til viðkomandi bónda og skilað greinargerð um tækifæri í búrekstri sem eru til staðar að heimsókn lokinni. Í þeim pakka er engum rekstrargögnum aflað en gögn um rekstur sauðfjárbúa hefur mjög skort undanfarin ár - bæði í vinnu sem þessari og ekki síður sem verkfæri í kjarabaráttu sauðfjárbænda.

Markhópur verkefnisins eru öll sauðfjárbú sem höfðu fleiri en 400 kindur á skýrslum, skýrsluhaldsárið 2014-2015. Þessi hópur er valinn þar sem í honum er væntanlega að finna flest þau bú sem treysta í umtalsverðu mæli á tekjur af sauðfjárrækt til framfærslu. Öll þessu bú fengu sent kynningarbréf seinni hluta nóvember þar sem þeim er formlega boðin þátttaka.

Skilyrði fyrir þátttöku í verkefninu eru þessi:

  • Tilkynna þarf þátttöku fyrir 1. janúar 2017.
  • Skila ársreikningi og/eða skattframtali fyrir árin 2014 og 2015 sem safnað er í lokaðan gagnagrunn fyrir 1. janúar 2017.
  • Þátttökubú hafi skilað skýrsluhaldsgögnum 2016 fyrir 31. desember nk.
  • Tekjur af sauðfjárrækt þurfa að vera a.m.k. 70% af búgreinatekjum hvers bús.

Framleiðnisjóður landbúnaðarins heldur nú utanum fagfé sauðfjárræktarinnar og framlagið til þessa verkefnis miðast við það að þátttökubú greiði 35% af kostnaði en styrkurinn nemi 65% af kostnaði. Vinnuþátturinn er áætlaður fimm tímar við hvert bú auk komugjalds.

Verkefnisstjórar þessa átaksverkefnis eru þau María Svanþrúður Jónsdóttir og Eyjólfur Ingvi Bjarnason. Þeir bændur sem áhuga hafa á þessu verkefni eru hvattir til að setja sig í samband við annað hvort Maríu eða Eyjólf en jafnframt veita þau nánari upplýsingar um verkefnið.

Brýn þörf er fyrir þetta verkefni en í þeim takmörkuðu bókhaldsgögnum frá sauðfjárbændum sem hafa skilað sér inn undanfarin ár sést mikill munur í afkomu og því er líklegt að víða séu tækifæri til að bæta reksturinn enda er öllum rekstri hollt að fá greiningu á stöðu sinni öðru hvoru.

eib/okg