Uppfærðar leiðbeiningar RML og BÍ til bænda vegna Covid 19

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) og sóttvarnarteymi Bændasamtaka Íslands hafa gefið út uppfærðar leiðbeiningar vegna hauststarfa bænda, sem taka mið af nýjum samkomutakmörkunum yfirvalda og sóttvarnalæknis.

Heimsóknir til bænda á vegum RML vegna hauststarfa 2020 hafa verið með breyttu sniði vegna Covid19. Viðbragðsteymi RML gaf út leiðbeiningar til starfsmanna og verktaka vegna hauststarfa í lok ágúst og hafa þær nú verið uppfærðar. Byggja þær leiðbeiningar á tilmælum yfirvalda og sóttvarnarlæknis.

Viðbragðsteymi RML hefur í samstarfi við sóttvarnarteymi BÍ og LS yfirfarið helstu atriði sem mikilvægt er að hafa í huga í hauststörfunum. Upplýsingar má nálgast á heimasíðu RML, www.rml.is og heimasíðu BÍ www.bondi.is um nánari útlistun á því sem þarf að hafa í huga.

Heimsóknir
Almennt er ekki mælt gegn því að farið sé í heimsóknir til bænda á vegum RML, sé hægt að halda reglu um fjarlægðamörk eða grímuskyldu þar sem hún á við og hægt er að viðhafa sóttvarnir samkvæmt sóttvarnarreglum á heimasíðu covid.is 

Varðandi komu erlendra aðila á vegum RML til landsins þá er það metið í hvert skipti í samráði viðbragðsteymið RML. 

Starfsmenn RML munu ekki taka þátt í hrútasýningum í haust í ljósi fjöldatakmarkana frá og með 5. október.

Sóttvarnir
Starfsmenn og verktakar á vegum RML nota grímur í heimsóknum þar sem ekki er hægt að halda eins meters fjarlægð. Mælst er til þess að viðskiptavinir geri slíkt hið sama og í öllum tilfellum verði reglur um fjarlægð og sóttvarnir tryggðar. Sóttvarnarbúnaður verður til staðar í bílum RML

Í vor voru gefnar út leiðbeiningar um sóttvarnir og landbúnað og eru þær leiðbeiningar aðgengilegar á heimasíðu RML á www.rml.is 

Starfsmenn og verktakar RML nota rakningarapp (rakning C-19 https://www.covid.is/app/is ) í símanum. Þeir starfsmenn sem ekki nota rakningar app skrá niður upplýsingar um hvar viðkomandi var og hverja hann hitti í heimsóknum á vegum RML utan starfstöðva. 

Smitrakningarappið og góðar sóttvarnir hafa þegar sannað gildi sitt í starfi RML, þegar upp kom smit á bæ þar sem starfsmenn RML voru við störf. Í kjölfarið fóru starfsmennirnir í sóttkví . Sem betur fer var ekki um smit að ræða enda hafði fyllstu sóttvarna verið gætt og starfsmennirnir með grímur og smitrakningarappið virkt.

Starfsmenn og verktakar RML eru jafnframt beðnir að gæta sérstaklega að sóttvörnum og takmarka þátttöku í hvers konar viðburðum eins og kostur er fjóra daga fyrir heimsóknir til bænda og yfir það tímabil sem viðkomandi er að heimsækja bændur.  

Finni starfsmenn eða verktakar RML  fyrir mögulegum einkennum Covid 19 eru skýr fyrirmæli um að þeir mæti alls ekki til vinnu og láti vita af hugsanlegu smiti hjá sér eða öðrum sem viðkomandi hefur verið í nánum tengslum við.

Aðstæður heima á bæjum
Bændur eru beðnir um að tryggja smitvarnir heima á bæjum og gæta þess að ekki séu fleiri við störf en þeir sem nauðsynlega þurfa að vera þegar ráðunautar koma í lambadóma, sýnatökur eða í öðrum erindum.

Jafnframt er mikilvægt að bændur láti vita strax til RML komi upp smit, grunur um smit eða einkenni hjá heimafólki hvort sem starfsmenn hafi verið á bænum eða eru væntanlegir í heimsókn. Hringið í síma 516-5000  eða sendið tölvupóst á rml@rml.is

Ef upp koma þær aðstæður að grunur er um smit eða veikindi eða starfsmenn þurfa að fara í sóttkví þá gætu skoðanir eða heimsóknir fallið niður með stuttum fyrirvara.
Við minnum á upplýsingar á heimasíðu okkar rml.is á forsíðunni undir hnappi sem heitir Covid 19 og landbúnaður. Þar eru ítarlegar upplýsingar unnar m.a. af ráðunautum RML til nota fyrir bændur í ýmsum aðstæðum sem upp geta komið. 

Fyrirkomulag haustfunda
Í ljósi aðstæðna reiknum við með að hefðbundnir haustfundir á vegum RML, Bí og fleiri fari að mestu fram í gegnum fjarfundarbúnað s.s. Teams eða Facebook. Það verður kynnt nánar þegar tímasetningar liggja fyrir.

5. október 2020.
Viðbragðsteymi RML og sóttvarnarteymi BÍ