Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar við lok mars 2014

Dúlla 203, móðir Dúllara 07024
Dúlla 203, móðir Dúllara 07024

Niðurstöðurnar úr skýrslum nautgriparæktarinnar í mars 2014 hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar niðurstöðurnar urðu til á miðnætti aðfararnótt 11. apríl var búið að skila skýrslum fyrir síðastliðinn mánuð frá 94% þeirra 579 búa sem nú eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu. Reiknuð meðalnyt 21.399,1 árskýr síðastliðna 12 mánuði var 5.655 kg. Sambærileg tala frá síðasta uppgjöri er 5.643 kg. Reiknuð meðalnyt á öllum búum sem einhverjum skýrslum var skilað fyrir á síðasta ári, 2013, var 5.621 kg en reiknuð meðalnyt 12 mánaða tímabils við lok janúar sl. var 5.652 kg. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem skýrslum hafði verið skilað frá á miðnætti aðfararnótt 11. apríl var 39,3 en sambærileg tala frá seinasta uppgjöri 39,0.

Mest meðalnyt á síðustu 12 mánuðum var á búi Sigurðar og Báru í Lyngbrekku á Fellsströnd, sama búi og fyrir mánuði, 7.912 kg eftir árskú. Annað í röðinni á umræddu tímabili, var bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði en þar var nytin 7.754 kg á árskú. Þriðja búið var bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en þar var reiknuð meðalnyt núna 7.665 kg á árskú. Búin í öðru og þriðja sæti eru þau sömu og seinast en þá var búið á Brúsastöðum nr. 2 en búið á Stóru-Tjörnum nr. 3. Fjórða í röðinni nú var bú Jóns og Hrefnu á Hóli í Sæmundarhlíð með reiknaða meðalnyt eftir árskú upp á 7.559 kg. Hið fimmta í röðinni var bú Eddu Bjarkar Hauksdóttur í Leirulækjarseli á Mýrum vestra. Nú var meðalnytin þar 7.470 kg á árskú. Á 30 búum sem skýrslur höfðu borist frá um miðnætti aðfararnótt 11. apríl reiknaðist meðalnytin nú 7.000 kg eða meiri og hafði þeim fjölgað um fimm frá næsta uppgjöri á undan.

Nythæsta kýrin á seinustu 12 mánuðum var Elma nr. 379 í Leirulækjarseli á Mýrum (f. nr. 332 undan Þrasa 98052) en hún mjólkaði 12.132 kg á tímabilinu. Elma var fjórða á þessum lista fyrir mánuði síðan. Önnur í röðinni nú var Sómalind nr. 268 á Stakkhamri í Eyja- og Miklaholtshreppi (f. Reykur 06040) en nyt hennar á 12 mánaða tímabili var 12.053 kg. Sómalind var efst á þessum lista við síðasta uppgjör. Næst á eftir var kýr nr. 471 í Lyngbrekku á Fellsströnd (f. Völusteinn 06020) en hún skilaði 12.018 kg á síðustu 12 mánuðum. Fjórða kýrin í röðinni var Huppa nr. 1123 á Stóra-Ármóti í Flóa (f. Kappi 01031) en nyt hennar var 11.676 kg á tímabilinu. Huppa stóð næstefst fyrir mánuði. Fimmta nythæsta kýrin við lok mars var Rjóð nr. 739 á Halllandi á Svalbarðsströnd (f. Sússi 05037) en hún mjólkaði 11.314 kg á uppgjörstímabilinu. Níu kýr mjólkuðu yfir 11.000 kg síðustu 12 mánuði og þar af þrjár yfir 12.000 kg. Þær sem komust yfir 11.000 við seinasta uppgjör voru einnig níu.

Sjá nánar:
Niðurstöður skýrslnanna í nautgriparæktinni

/sk