Nautaskrá veturinn 2016 komin út

Nautaskrá fyrir veturinn 2016 er komin út og er dreifing á henni til kúabænda þegar hafin. Skráin inniheldur upplýsingar um þau reyndu naut sem eiga sæði í dreifingu og eru þau 16 talsins. Að venju er skrána einnig að finna á vefnum á slóðinni  www.nautaskra.net sem pdf-skjal auk þess sem hægt er að fletta henni sem rafbók.

Þeir kúabændur sem ekki fá skrána í hendurnar á næstu dögum geta haft samband við frjótækna, búnaðarsamböndin, skrifstofur RML eða Nautastöð BÍ og óskað eftir eintaki.

/gj